Frétt
29.11.2005
Íslensku vefverðlaunin 2005
Íslensku Vefverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í IÐNÓ 29.nóvember kl. 17.00 Það eru ÍMARK og undirbúningsnefnd SVEF, samtökum vefiðnaðarins, sem standa að verðlaununum og eru styrkt af ISNIC, Íslandsbanka, KBBanka og Landsbanka.
Þetta er í fimmta skipti sem verðlaunin eru veitt og eru árlega veitt vefjum sem taldir eru skara fram úr á sínu sviði.
Söfnun tilnefninga fór fram á vefnum www.vefverdlaun.is og hin íslenska vefakademía sem skipuð er fimm reyndum einstaklingum úr vef- og markaðsiðnaðinum, valdi úr tilnefningunum sigurvegara í hverjum flokki. Alls bárust um 4.900 tilnefningar og hefur fjöldi tilnefninga fjölgað mikið ár frá ári. Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- og iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin sem unnin eru úr íslensku grágrýti.
Keppt er í 5 flokkum og eru 5 vefir tilnefndir í hverjum flokki. Samkvæmt niðurstöðum dómnefndar urðu eftirtaldir aðilar sigurvegarar hver í sínum flokki:
Niðurstöður dómnefndar voru:
Besti íslenski vefurinn var valinn www.mbl.is
Aðrir vefir sem hlutu tilnefningu voru:
www.glitnir.is
www.isb.is
www.ksi.is
www.li.is
Besta útlits- og viðmótshönnunin hlaut www.isb.is
Aðrir vefir sem hlutu tilnefningu voru:
www.aviongroup.is
www.front.is
www.glitnir.is
www.hive.is
Besti fyrirtækisvefurinn var valinn www.isb.is
Aðrir vefir sem hlutu tilnefningu voru:
www.glitnir.is
www.siminn.is
www.sjova.is
www.tryggingamidstodin.is
Besti afþreyingarvefurinn var valinn www.skjarinn.is
Aðrir vefir sem hlutu tilnefningu voru:
www.baggalutur.is
www.rjominn.is
www.ruv.is
www.visir.is
Besti einstaklingsvefurinn
Aðrir vefir sem hlutu tilnefningu voru: arni.hamstur.is
www.bjorn.is
fjandinn.com/jonni
www.sigurjon.com
www.thorsteinngudmundsson.is
Nánari upplýsingar um verðlaunin er að finna á slóðinni http:// www.vefverdlaun.is/ .
til baka