Frétt
27.10.2006
Markaðsverðlaun 2006 - úrslit
Markaðsverðlaun ÍMARK 2006.Metþátttaka og uppselt var á verðlaunaafhendinguna sem haldin var föstudaginn 27.október, 2006. Eins og áður var góð stemmning og viðburðurinn skemmtilegur enda góð blanda af fólki úr atvinnulífinu.
Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson, um val á markaðsfyrirtæki og markaðsmönnum ársins 2006. Árið í ár er í 16. sinn sem verðlaunin eru veitt.
Katrín Olga Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Símans var ræðumaður dagsins og fjallaði um markaðsmál og spann við sögu og framtíð Símanns.
Icelandair var valið markaðsfyrirtæki ársins 2006 en auk þess voru Glitnir og Kaffitár tilnefnd til verðlaunanna. Þessi fyrirtæki hafa sýnt frábæran árangur hvert á sínu sviði og síðastliðið ár verið viðburðarríkt.
Björn Kr. Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, betur þekkt sem Björn og Dísa í World Class voru valin Markaðsmenn ársins 2006. Dómnefnd fyrir val á markaðsmanni ársins voru eftirfarandi aðilar:
Björn Víglundsson fyrverandi formaður ÍMARK, Bogi Ágústsson forstöðumaður fréttasviðs RÚV, Elísabet B. Sveinsdóttir formaður ÍMARK, Hrönn Greipsdóttir hótelstjóri Radisson SAS Hótel Sögu, Ingólfur Guðmundsson formaður fulltrúaráðs ÍMARK, Ingvi Jökull Logason formaður SÍA, Jóhannes Ingi Davíðsson framkvæmdastjóri ÍMARK, Leopold Sveinsson framkvæmdastjóri Argus, Svanhildur Konráðsdóttir forstöðumaður hjá Höfuðborgarstofu og Þórólfur Árnason forstjóri Skyrr.
Ræða Jóhannesar Inga Davíðssonar framkvæmdastjóra ÍMARK
Ræða Ingólfs Guðmundssonar formanns fulltrúaráðs ÍMARK
til baka