Aug. 03 2011-12:00

Ráðstefnan ad:tech London 2011

 

Sértilboð fyrir ÍMARK félaga á ad:tech

 

Ráðstefnan ad:tech London er ein sú allra heitasta í rafrænni markaðssetningu í Evrópu og verður haldin 21.-22. september.  ÍMARK hefur tryggt félögum sínum sértilboð inn á ráðstefnuna - 500£ + VAT  í stað 795£+ VAT.

 

Það er skammur tími til stefnu - áhugasamir þurfa að hafa hraðar hendur og staðfesta þátttöku sem allra fyrst. Takmarkað sætaframboð er á fluginu!

 

Á  ad:tech fara frábærir fyrirlesarar yfir allt það nýjasta í rafrænni markaðssetningu, ræða áskoranir á þessu vettvangi og deila með okkur reynslusögum sínum:

  • Stefnumótun
  • Hönnun
  • Vefborðar
  • Samfélagsmiðlar
  • Mobile marketing
  • Vídeó
  • Uppbyggingu vörumerkja
  • Samþætting off line og on line markaðssetningar

og margt fleira.

 

Samhliða ráðstefnunni er mjög stór og flott sýning á nýjasta hugbúnaði og þjónustu sem  tengjast markaðssetningu á netinu.



Fyrirlesarar eru frá helstu stórfyrirtækjum á sviði rafrænnar markaðssetningar, s.s.

  • Google
  • Youtube
  • Twitter
  • Facebook
  • Microsoft  
  • Amazon
  • Ebay
  • AOL & Goviral
  • Forbes
  • Nike
  • Mozilla
  • The Guardian 

 

Hér má sjá yfirlit yfir fyrirtæki er verða með fulltrúa sína á ad:tech: adtech_Conference_Delegates_2011.pdf  




Til að að fá ÍMARK - afsláttinn við bókun á ráðstefnuna skal fara inn hér  til að skrá þátttakanda og slá inn kóðann AD500 (Promotional code). Innifalið er aðgangur að öllum fyrirlestrum og atburðum ráðstefnunar, ásamt hádegisverði báða dagana.


Hótel: Ráðstefnugestir sjá sjálfir um að bóka hótel að eigin vali. Hér má finna hótel sem bjóða sérstakt verð fyrir ráðstefnugesti ad:tech.

 

Ath. Gert er ráð fyrir að þátttakendur sjái sjálfir um að skrá sig á ráðstefnuna, flugið og hótel.



 

 


Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð