Aug. 26 2010-10:08

Golfmót ÍMARK 2010 - breyting

9 holu Texas Scramble

Miðvikudaginn 1.september á Bakkakotsvelli í  Mosfellsbæ.

Vegna áskoranna er breyting á fyrirkomulagi og verða spilaðar 9 holur eftir Texas Scramble í stað 18 eins og áður er auglýst.

Bæði reyndir og óreyndir félagar geta tekið þátt. Mótið er vettvangur til að kynnast öðrum ÍMARK félögum og styrkja tengslin. Ræst verður af öllum teigum samtímis kl.16.00. 

Að venju eru glæsilegir vinningar í boði. Nándarverðlaun á par 3 holum og dregið úr skorkortum þannig að flestir fá verðlaun. 

Meðal vinninga eru flugferðir til Evrópu með Icelandair.
Einnig eru vinningar frá Kringlunni, Vodafone, Salnum í Kópavogi, Bláa Lóninu, Vox,
Ennemm, Nóa Siríus, Ölgerðinni, Margt Smátt, Golfklúbbi Reykjavíkur auk annarra vinninga. Það verður einginn svikinn af vinningum.

  • Mótsgjald er aðeins 3.900 kr.
  • Mæting kl. 15.30 og ræst verður út á öllum teigum kl.16.00.
  • Matur og léttar veitingar innifaldar í verði ásamt teiggjöfum.
  • Áhersla er lögð á að mótið sé skemmtilegt og tækifæri til að eiga góðan dag með ÍMARK félögum.


Mótið er  fyrir ÍMARK félaga og er þeim heimilt að bjóða með sér gesti á mótið.
Skráning á www.imark.is eða á skráningarhnappi. Ekki bíða með að skrá þig þar sem þátttökufjöldi er takmarkaður.

Þátttökugjald þarf að leggja inn á reikning 101-26-861779, kt.691286-1779 fyrir 30.ágúst og munið að setja kennitölu þátttakanda á greiðslukvittun.


Nánari upplýsingar


Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð