Vel heppnað golfmót ÍMARK
Það er óhætt að segja að félagar og gestir sem tóku þátt í golfmóti ÍMARK 1.september s.l. hafi skemmt sér vel í góðum hópi. Eins og fyrri ár var keppt í Texas Scramle og voru 15 lið að þessu sinni. Það voru bæði reyndir og nýliðar sem spiluðu saman og veðrið lék við þátttakendur. Bjart og hlýtt.
Þótt Bakkakotsvöllur sé með minni völloum þá heldur hann vel utanum þetta mót og mörg andlit sem búin eru að taka þátt frá upphafi.
Að venju var fjöldi glæsilegra vinninga í boði og endaði þannig að hver einasti spilari fékk vinning með sér heim.
Sigurvegarar í mótinu voru þeir Anton Antonsson og Valgeir Vilhjálmsson og hlutu flugferð til Evrópu með Icelandair. Í öðru sæti þau Hulda Bjarnadóttir og Árni Esra Einarsson og fengu Titleist burðarpoka frá Vodafone og í þriðja sæti Svanþór Laxdal og Ingólfur Hjörleifsson og hrepptu gjafabréf í Kringlunni.
Næstir holu voru þeir Sigurður Sigfússon og Örn Smári Gíslason.
Að venju er Chip keppni þar sem reynt er að hitta í bunkerinn fyrir framan húsið og eftir mjög tvísýna keppni gekk Stefán Pálsson með sigur af hólmi.