Íslensku auglýsingaverðlaunin - Lúður 2011 

 

 

Lúðrahátíðin fer fram 24. febrúar 2012 í Hörpu.

Nánar auglýst innan tíðar.

 

Lúðurinn 

Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, er opinn öllum sem stunda gerð eða
dreifingu auglýsinga á Íslandi. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á vel gerðum
auglýsingum og auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli.

 

 

Lúður - AAÁ

Athyglisverðasta auglýsing ársins, AAÁ, er lúður sem veitir frumlegum, skapandi og snjöllum hugmyndum sem eru útfærðar á framúrskarandi hátt viðurkenningu.

 

Lúður - ÁRA

Árangursríkasta auglýsingaherferðin, ÁRA, er lúður sem veitir herferðum viðurkenningu sem skilað hafa framúrskarandi árangri.

 

 

Veitt verða verðlaun í eftirtöldum 16 flokkum:

Kvikmyndaðar auglýsingar - AAÁ

Útvarpsauglýsingar - AAÁ

Prentauglýsingar - AAÁ

Stafrænar auglýsingar - AAÁ

  • Hreyfimyndir
  • Vefauglýsingar
  • Samfélagsmiðlar

Umhverfisauglýsingar - AAÁ

Veggspjöld og skilti - AAÁ

Markpóstur - AAÁ

Viðburðir - AAÁ

Fyrirtækjaásýnd - AAÁ

Almannaheillaauglýsingar - AAÁ

  • Auglýsingar í ljósvakamiðlum (sjónvarps- og útvarpsauglýsingar)
  • Auglýsingar í öðrum miðlum

Val fólksins - AAÁ

Auglýsingaherferðir - AAÁ

Árangursríkasta auglýsingaherferðin - ÁRA

 

Dómnefnd AAÁ

Dómnefnd skal skipa 13 manns er skiptist eftirfarandi;

ÍMARK - 3 aðilar

  • Fulltrúar ÍMARK stjórnar, stjórn getur valið fulltrúa utan stjórnar ÍMARK.

SÍA - 7 aðilar

  • Fulltrúi hverrar SÍA auglýsingastofu, fulltrúi skal vera í stöðu innan stofunnar er samsvarar til ´creative director´.

Minni fyrirtæki og einyrkjar - 1 aðili

  • Fulltrúi skal vera í stöu er samsvarar til ´creative director´.

Háskólasamfélagið - 2 aðilar

  • Fulltrúar úr háskólasamfélaginu á sviði er tengist markaðssviði og auglýsingagerð.

 

Vinnufyrirkomulag dómnefndar AAÁ

Innsendingar eru dæmdar í tveimur umferðum.  Í fyrri umferð fer dómnefnd yfir, og ræðir sín á milli, allar innsendingar og velur að hámarki 10 í hverjum flokki.  Þær innsendingar sem valdar eru komast í seinni umferð. Farið er sameiginlega yfir efni á tölvutæku formi á skjávarpa eða sýnishorn skoðuð á staðnum.  Kosning  er nafnlaus og fer þannig fram aðhver dómari velur  að hámarki 5 auglýsingar í hverjum flokki sem að hans mati á að komast áfram.  Kosið og talið er á staðnum og dómnefndinni gerð úrslit kunnug. Dómnefndin ræða þvínæst úrslitin og gerð er sú krafa að dómnefndarmeðlimir þurfa að vera sammála niðurstöðunni til að þau standi (meirihluti ræður).  Dómurum er sem sagt frjálst að breyta niðurstöðunni ef það er sameiginleg ákvörðun þeirra að gera svo.

Í seinni umferð er farið er yfir þær innsendingar sem komust áfram. Dómnefndarmeðlimir skoða innsendingar vandlega og ræða sín á milli. Farið er sameiginlega yfir efni á tölvutæku formi á skjávarpa eða sýnishorn skoðuð á staðnum. Þvínæst er leynileg kosning en hún verður rekjanlegt af framkvæmdaaðila (framkvæmdastjóra ÍMARK).  Hver dómari gefur þremur  auglýsingum stig (5 stig fyrir þá innsendingu sem þeir telja besta, gefa 3 stig fyrir annað sætið og 1 fyrir það þriðja) í hverjum flokki sem að þeirra mati eigi að fá tilnefningu. Dómarar mega ekki taka þátt í kosningu, og vera viðstaddir, ef innsendingar koma frá stofum þar sem þeir starfa.   Þeim er þó frjálst að vera viðstaddir meðan atkvæði eru talin og umræða fer fram. Endanleg niðurstaða er munnlegt samkomulag dómnefndarinnar (meirihluti ræður).

Þrjár til fimm innsendingar eru tilnefndar til Lúðurs og ein af þeim vinnur Lúður.

 

Dómnefnd ÁRA

Dómnefnd skal skipa 11 manns er skiptist í eftirfarandi;

ÍMARK - 2 aðilar

  • Stjórnarmeðlimir, fulltrúar ÍMARK stjórnar.

Rannsóknarfyrirtæki - 2 aðilar

  • Fulltrúar rannsóknarfyrirtækja er gera markaðsrannsóknir.

Háskólasamfélagið - 1-2 aðilar

  • Fulltrúar úr háskólasamfélaginu á sviði er tengist beint markaðssviði eða viðskiptasviði.

Atvinnulífið - 5-6

  • Stjórn ÍMARK ákveður 5-6 fulltrúa atvinnulífsins.

Athugið að fulltrúar frá auglýsingastofum sitja ekki í dómnefnd.

 

Vinnufyrirkomulag dómnefndar ÁRA

Dómarar fara yfir innsendingar í tveimur umferðum.  Í fyrri umferð fara dómarar yfir allar innsendingar á tölvutæku formi og gefa einkunn frá 1 upp í 100. Lykilþáttur í mati dómara er að meta gæði greininagerðarinnar og sönnun á árangri herferðarinnar. 

Í seinni umferð hittist dómnefnd og fer yfir niðurstöður fyrri umferðar. Dómnefnd getur breytt niðurstöðunni ef rík ástæða þykir til þess og hefur einnig leyfi til að kalla eftir viðbótar upplýsingum frá einstaka innsendingaraðila.

Þrjár til fimm innsendingar eru tilnefndar til Lúðurs og eina af þeim vinnur Lúður.

 

Athugasemdir vegna Lúðurs

Formlegar athugasemdir vegna Lúðurs skal senda með tölvupósti á imark@imark.is og úrskurðarnefnd mun taka þær fyrir. Úrskurðarnefnd skipar stjórnarformann ÍMARK, framkvæmdastjóra ÍMARK og formann viðkomandi dómnefndar (AAÁ eða ÁRA). Formlegum athugasemdum er svarað með niðurstöðu úrskurðanefndar.   

 

 

Dagatal

     Ágúst  2010     

SunMánÞriMiðFimFösLau
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031        

Skráning í ÍMARK

Vertu félagi í stærsta félagi markaðsfólks á Íslandi

Skráning á viðburð


Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð