01.04.2010 11:55

MARKAÐSSETNING Á NETINU.

MARKAÐSSETNING Á NETINU.

Bókin er hagnýt verkfærakista fyrir íslenskt markaðsfólk sem vill nota netið í sínu markaðsstarfi.  Í henni er fjallað um allar helstu samskiptaleiðir, innlendar og erlendar rannsóknir um notkun fólks á netinu og hvernig hámarks árangri er náð.

Í bókinni fjölmagar íslenskar dæmisögur og tölur fyrir íslenskt markaðsfólk að nota sem viðmið í sínum daglegu störfum.Bókin kynnir nýjar áður óbirtar rannsóknir sem varpa ljósi á það hversu langt ísland er komið í notkun á netinu en tækifærin fyrir íslensk fyrirtæki eru því geysilega mikil.
Nánar um bókina

Eftir lesturinn lærir þú að:

...skilja breytingar á neytendamynstri.
...ná hámarks árangri með vefborðum
...ná hámarks árangri með leitarvélunum
...ná hámarks árangri með samfélagsmiðlunum (Facebook, Twitter)
...ná hámarks árangri með tölvupóstum
...læra á vefgreiningartól og að nýta þau
...nýta netið inn í hefðbundnar birtingaáætlanir
...nýta tækifæri á netinu og oft með litlum tilkostnaði. 
 
Höfundar bókarinnar eru ÍMARK félagar og eru þeir:

Guðmundur Arnar Guðmundsson er hagfræðingur frá Acadia University í Kanada og með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.  Hann hefur ritað fjölda greina um viðskipti og markaðsmál í tímarit og blöð á Íslandi, situr nú í stjórn Ímarks, félags markaðsfólks á Íslandi.  Hann starfar á markaðssviði Icelandair og heldur úti blogginu Markaðssetning á netinu.

Kristján Már Hauksson, rafeindarvirki, kerfisfræðingur og er með internet markaðsfræðigráðu frá University of British Columbia. Hann stofnaði Nordic eMarketing og starfar nú þar sem sviðstjóri net markaðssetningar.  Þar sérhæfir hann sig í  leitarvélamarkaðssetningu og net-almannatengslum (ePR – Online PR).


Almennt verð  á bókinni er  5.500 kr.
ÍMARK verð: 4.500 kr. Til að versla sendið póst á Guðmund Arnar gummi3849@gmail.com

05.10.2009 10:42

Bók mánaðarins

Tækifærin sem felast í hjarðhegðun.

Ættbálkur er hópur fólks, stór eða smár, sem tengjast á einhvern hátt.

Hafa til að mynda sama leiðtoga og sömu hugmyndir í meginatriðum. Í milljónir ára hefur mannkynið tilheyrt ættbálkum, hvort sem þeir tengjast trú, þjóð, hugsjónum eða ákveðnum lífstíl. Fjarlægðir, kostnaður og tími skilgreina ekki lengur hópa og blogg og samfélagsvefir hafa búið til nýjan vettvang fyrir fólk að mynda hópa á grundvelli hugmynda og hugsjóna.

Tribes eftir metsöluhöfundinn Seth Godin fær þig til að sjá tækifærin sem felast í því að leiða samstarfsfélaga þína, viðskiptavini og lesendur. Það er ekki auðvelt en líka auðveldara en þú heldur.

Pöntun á bók.
Að panta þessa bók er er einfalt. það eina sem þú þarft að gera er aða senda pöntun á netfangið skuld@skuld.is ásamt upplýsingum um heimilisfang, síma og greiðslutilhögun, þ.e. hvort senda á reikning á viðkomandi fyrirtæki eða greiða með kreditkorti.


28.09.2009 11:34

Hvað er verið að tísa hérna?

Þessi hefur verið að birtast í kvikmyndahúsum og blöðum...en hvað er verið að tísa?

 

20.09.2009 08:19

Hvað finnst þér um Essasú frá Vodafone?

Hún er mjög umtöluð þessa dagana herferð Vodafone með ,,Essasú" frasanum sem virðist vera á allra vörum.

Maður hefur heyrt að bransafólki finnist conceptið skemmtilegt og að það ýti undir ,,fun" factorinn hjá Vodafone en að varan sem er verið að auglýsa týnist svolítið.  Sjálfur hallast ég að því að þetta sé mjög mikið success, en yfir 14.700 áhorf á YouTube finnst mér ýta undir það.

Hvað finnst þér?

 

16.09.2009 09:04

Hafa hræðslu-auglýsingar áhrif?

Þessi forvarnarauglýsing hvetur fólk til að vera ekki í símanum, að senda skeyti, á meðan það keyrir.

Ég hallast að því að fólk þurfi að vera mjög tilfinningasnautt ef myndbandið hefur ekki virkleg áhrif...amk mun undirritaður láta af þessari iðju eftir að hafa horft!

14.09.2009 12:23

Hvað finnst þér um buzz-ið hjá Visit Denmark

Visit Denmark setti myndband af konu að leita af barnsföður sínum inná Youtube til að vekja athygli á Danmörku sem áfangastað.  Myndbandið komst í fréttirnar áður en það kom í ljós að um auglýsingu var að ræða.

Það er búið að taka Visit Denmark í gegn út af þessu í DK og fjarlægja myndbandið af þeim vefsíðum þar sem það fyrst birtist, en eins og með margt sem fer á netið, er erfitt að eyða því alveg út.  Myndbandið lifir því á Youtube ennþá þótt Visit Denmark hafi fjarlægt það af sinni vefsíðu.

Gefur áhugaverða mynd af dönsku kvenfólki...hvað finnst þér?

 

Hægt að horfa á myndbandið með því að smella á myndina.

10.09.2009 02:50

Fyndið ,,buzz" fyrir Fangavaktina á Stöð 2

09.09.2009 09:39

Bókaklúbbur ÍMARK í samstarfi við Skuld bókabúð.

Félagar í ÍMARK gerast sjálfkrafa félagar í bókaklúbbnum.

Fyrirkomulagið er þannig að boðin verður ný bók hvern mánuð að jafnaði. Það þarf að skrá skrá sig fyrir kaupum á þeirri bók sem í boði er hvert sinn. Að panta bók er einfalt. það eina sem þú þarft að gera er aða senda pöntun á netfangið skuld@skuld.is ásamt upplýsingum um heimilisfang, síma og greiðslutilhögun, þ.e. hvort senda á reikning á viðkomandi fyrirtæki eða greiða með kreditkorti.

Bækurnar eru valdar af SKULD bókabúð og ÍMARK en viðmiðið er að bjóða nýlegar, áhugaverðar bækur á breiðu sviði markaðsmála. Bækurnar eru á góðum afslætti og verða sendar til félaga með pósti.

Bókaklúbbsfélagar fá einnig 10% afslátt af öllum keyptum bókum.

Bókaklúbburinn er samvinnuverkefni ÍMARK og SKULDAR bókabúðar.

Dagatal

     Febrúar  2012     

SunMánÞriMiðFimFösLau
      1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829      

Könnun

Á hvaða þætti leggur þitt fyrirtæki áherslu á í markaðsstarfi við núverandi efnahagsaðstæður ?

Verði
Þjónustu
Gæðum vöru
Annað

Kjósa  

Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð