Sep. 14 2009-12:23

Hvað finnst þér um buzz-ið hjá Visit Denmark

Visit Denmark setti myndband af konu að leita af barnsföður sínum inná Youtube til að vekja athygli á Danmörku sem áfangastað.  Myndbandið komst í fréttirnar áður en það kom í ljós að um auglýsingu var að ræða.

Það er búið að taka Visit Denmark í gegn út af þessu í DK og fjarlægja myndbandið af þeim vefsíðum þar sem það fyrst birtist, en eins og með margt sem fer á netið, er erfitt að eyða því alveg út.  Myndbandið lifir því á Youtube ennþá þótt Visit Denmark hafi fjarlægt það af sinni vefsíðu.

Gefur áhugaverða mynd af dönsku kvenfólki...hvað finnst þér?

 

Hægt að horfa á myndbandið með því að smella á myndina.

Þessi færsla kom í heiminn 14. September 2009 klukkan 12:23 og er flokkuð undir Markaðsmál  Umræðan. Þú getur fylgst með athugasemdum við færsluna í gegnum RSS 2.0 strauminn. Þú getur líka lagt orð í belg, eða vísað í þessa færslu af þinni eigin síðu.

15 SVÖR VIÐ "HVAÐ FINNST ÞÉR UM BUZZ-IÐ HJÁ VISIT DENMARK"


  1. Haffi
    Mjög sérstök nálgun
    Hefði verið gaman að sjá hvaða strategía lá á bakvið þennan gjörning. Fjörugt næturlíf??!
    En milljón smellir, er það ekki eftirsóknarvert?
  2. Haffi
    Mjög sérstök nálgun
    Hefði verið gaman að sjá hvaða strategía lá á bakvið þennan gjörning. Fjörugt næturlíf??!
    En milljón smellir, er það ekki eftirsóknarvert?
  3. Gummi
    ..
    Sammála því með smellina...engin smá athygli sem þeir hafa fengið!

    Ætli fjörugt næturlíf og fallegt lauslátt kvennfólk sé ekki sölupunkturinn? Einhverjir myndu eflaust halda því fram að það væri nokkuð sterkt statement. :-)
  4. Gunnar Hólmsteinn
    Góð dreifing.
    Þetta Video náði góðri dreifingu með litlu seed'i. Er eflausta að ná enn meiri dreifingu eftir að upp komst að þetta var plat og fjölmiðlar byrja að fjalla um þetta.
  5. Andrés Jónsson
    Vel heppnað
    Svolítið sorglegt að þetta skuli hafa kostað þá sem fengu hugmyndina starfið út af gamaldags pólitískri rétthugsun.

    Hefði líklega þurft að vera minni aðili sem gerði þetta.
  6. Gummi
    ..
    Andrés, ég held þetta sé alveg spot on hjá þér. Þetta hefði þurft að vera einhver aðili sem er ekki opinber...og VisitDenmark kannski að borga brúsann en ekki standa á bak við.

    Þetta er auðvitað alveg fáranlega mikil athygli sem þetta hefur fengið. Danmörk er á vissan hátt eins og Ísland, þeirra stærsta verkefni er að fræða fólk um land og þjóð...því fáir vita eitthvað um það...
  7. Hjalti Már Einarsson
    Úthugsað?
    Ég velti samt fyrir mér hversu úthugsuð eða pæld þessi herferð var? Jú ok, að vekja athygli á Danmörku sem ferðamannastað, þetta myndband vakti gríðarlega athygli. En hver var boðskapurinn? Áttu karlkyns ferðamenn sem höfðu farið til Danmerkur fyrir ári síðan (og gert sér glaðan dag) að fá í magann? Danskt "hygge", er það einnar nætur gaman með danskri ljósku eftir gott kvöld á Nyhavn?

    Svo er líka spurning hvernig Visit Denmark höndlaði þessa neikvæðu athygli í kjölfarið, t.d. með því að taka myndbandið út af youtube. Var til eitthvað plan B, ef þetta félli í grýttan jarðveg? Væri gaman að fá álit almannatengla á því.
  8. Rangle
    QzRQFroIHrOCwyMNJX
    That's way the bestest asnewr so far!
  9. mzybswv
    ItwZUIOchOZj
    pe7YHt , [url=http://gzfatmbrvjqd.com/]gzfatmbrvjqd[/url], [link=http://lsznhskkfqev.com/]lsznhskkfqev[/link], http://ugcwptgoqpal.com/
  10. mjljzy
    TfJSvpMNy
    rksw0H , [url=http://hchcyqkhumsp.com/]hchcyqkhumsp[/url], [link=http://uwydppvtyfag.com/]uwydppvtyfag[/link], http://grcienwnoxca.com/
  11. Urson0Xk
    Uiuoebsz
    sT7SKS http://www.2KFk8UxzgR3t2CjpiGYlWRZr9NzJwIs8.com
  12. joseph
    kZiBjNeBmOhGwL
    http://www.l4kQDD30zNsyoG7pFkTOj6m6mXdUqdwF.com
  13. trinity
    gEpGpHrb
    http://www.NIzi0QxjqKwVZYJ0oEPJhqfCBoLXzubW.com
  14. Qpdgcvil
    kCnLOQMgkgB
    A pension scheme
  15. Dgswqchz
    YuBaQqxKpUAxEFkMKha
    Not in at the moment

LEGGÐU ORÐ Í BELG

Dagatal

     Febrúar  2012     

SunMánÞriMiðFimFösLau
      1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829      

Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð