Sep. 20 2009-08:19

Hvað finnst þér um Essasú frá Vodafone?

Hún er mjög umtöluð þessa dagana herferð Vodafone með ,,Essasú" frasanum sem virðist vera á allra vörum.

Maður hefur heyrt að bransafólki finnist conceptið skemmtilegt og að það ýti undir ,,fun" factorinn hjá Vodafone en að varan sem er verið að auglýsa týnist svolítið.  Sjálfur hallast ég að því að þetta sé mjög mikið success, en yfir 14.700 áhorf á YouTube finnst mér ýta undir það.

Hvað finnst þér?

 

Þessi færsla kom í heiminn 20. September 2009 klukkan 08:19 og er flokkuð undir íslenskur auglýsingamarkaður. Þú getur fylgst með athugasemdum við færsluna í gegnum RSS 2.0 strauminn. Þú getur líka lagt orð í belg, eða vísað í þessa færslu af þinni eigin síðu.

9 SVÖR VIÐ "HVAÐ FINNST ÞÉR UM ESSASÚ FRÁ VODAFONE?"


  1. Gréta
    góð og vel útfærð hugmynd
    Ég held að allir elski ástríka græna froskinn...
    vel útfærðar auglýsingar og bjart innlegg inn í drungalega daga.
  2. Gústi
    Athyglivert sannarlega en...
    ég spyr mig, hver er markhópurinn? Mér finnst þetta góðar auglýsingar, þetta hitti mig beint þar sem ég á lítil börn og heyrði þetta í útvarpi, maður notar sjálfur óspart svona talmáta við ýmis tækifæri. Græna froskinn sá ég svo seinna. Þess vegna dettur mér í hug, konur sem markhópur.

    Græni froskurinn er greinilega prins eða konungur og því einnig tilvísun í að kyssa froskinn sem breytist í prins. Það gæti gefið vísbendingar um yngri konur sem markhóp?

    Lítil og nett Dell tölva passar einnig þar, færri karlmenn heillast af mjög litlum og nettum tölvum, 10,1" skjár er ekki að höfða til okkar :)

    Þessi herferð er reyndar eins og hefur verið bent á doldið ruglingsleg varðandi hvað er verið að selja í byrjun, sumir telja það vera fartölvu, aðrir 3g Vodafone og enn aðrir báðar þessar vörur.

    Klárlega er verið að selja báðar vörurnar að mínu mati.

    Einkunn 8,5 hjá mér, flott pæling. Gaman væri að heyra um markmiðið og markhópinn frá insider :)
  3. Ragna
    4 ára
    Á einn 4 ára sem hættir ekki að tala um hann :-)

  4. Steinar
    Engin titill
    Froskurinn og sérstaklegar frasinn fór sem eldur í sinu um allt Ísland, það var varla til sá einstaklingur sem hafði ekki kannast við Essasú? Það að svona frasi stökkbreytist og öðlist sjálfstætt líf utan auglýsingarinnar hlýtur að vera draumur markaðsmannsins. Það er ekki hægt að ákveða slíkt fyrirfram að þessi eða hin auglýsing eigi eftir að slá í gegn þrátt fyrir að það allir leggist á eitt að gera slíkt. Rétt eins og lag sem slær í gegn og allir fá á heilann. Ég tel að skilaboðin um Netfrelsi Vodafone hafi fallið algjörlega í skuggann af froskinum. Fólk tók ekki augun af honum. Hins vegar fékk Vodafone jákvæðan og skemmtilegan kynningarfulltrúa í frosklíki.
  5. Helena
    Essasú....er að auglýsa hvað?
    Það sem mér finnst merkilegt er að þessi ofurfrasi "Essasú" sem er á hvers manns vörum hefur ákaflega lítið auglýsingagildi fyrir þá vöru sem verið er að auglýsa þ.e.a.s enginn man hvað verið er að auglýsa !!
  6. wxw
    Engin titill
    ??????????pk???????????????????

    http://www.woxiangwan.com/

    ??????????pk???????????????????

    http://www.woxiangwan.com/
  7. Carli
    tFXqcNHBG
    Wow! Great tihnknig! JK
  8. wddyiq
    YVieeGiNwxMjqDKnB
    xerCW2 , [url=http://czfdufroawsw.com/]czfdufroawsw[/url], [link=http://qjgxwgzmaztf.com/]qjgxwgzmaztf[/link], http://bpnxcmioqgmb.com/
  9. zplondsyyn
    uiKNgXYbQMtTzo
    Q7wG0H , [url=http://xaacchktyjva.com/]xaacchktyjva[/url], [link=http://nfcgvohowjdu.com/]nfcgvohowjdu[/link], http://qvzfhwmbsmap.com/

LEGGÐU ORÐ Í BELG

Dagatal

     Febrúar  2012     

SunMánÞriMiðFimFösLau
      1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829      

Heimilisfang, símanúmer o.þ.h

ÍMARK, félag íslensks markaðsfólksLISA
Suðurlandsbraut 30, Pósthólf 8189 - 128 Reykjavík, Sími: 511 4888, imark@imark.is 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

Leit

Leit Leit
Leturstærð