22.01.2012
ÍMARK dagur 2012
Fyrstu upplýsingar um fyrirlesara á ÍMARK deginum hafa verið birtar hér á heimasíðunni. Dagskrá og nánari upplýsingar um fyrirlesara verða birtar innan tíðar.
Sjá nánar hér.
18.01.2012
Háskólafundur ÍMARK
ÍMARK og viðskiptadeildir Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri héldu í samstarfi sinn fyrsta Háskólafund ÍMARK í byrjun febrúar. Tilgangur þessa fundar er að byggja brú á milli atvinnulífs og háskóla, milli fræða og praktík.
Á Háskólafundi ÍMARK voru flutt fimm stutt en fjölbreytt erindi af aðilum úr háskólunum annarsvegar og aðilum úr atvinnulífinu hinsvegar. Hvert erindi tekur 10 mínútur, svokölluð örerindi, þar sem farið er yfir áhugaverð efni er tengjast markaðsmálum. Hugmyndin var að hver háskóli leggi til eitt erindi á athyglisverðum háskólaverkefnum nemenda eða kennara og einnig voru tvö fróðleg erindi úr atvinnulífinu. Rauði þráðurinn er markaðsmál.
Um 50 manns mættu á fyrsta Háskólafund ÍMARK sem haldinn var í Háskólanum í Reykjavík þann 2.febrúar2012.
Fundarstjóri: Friðrik Larsen, lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.
Háskólinn á Bifröst
Nemandi: Bárður Örn Gunnarsson
Leiðbeinandi: Einar Svansson
Gráða: M.Sc. í nýsköpunar- og frumkvöðlafræði frá viðskiptadeild
Verkefni: Hlustað á neytandann, virði fyrir nýsköpun í þjónustu og viðskiptaþróun í ferðaiðnaði. Verkefnið er skrifað á ensku og er frumheitið: Listening to the Consumer, Value for Innovation in Services and Business Development in Tourism.
Tilgangur rannsóknarinnar er að kanna hvort og með hvaða hætti íslensk ferðaþjónustufyrirtæki nýta sér hlustun á viðskiptavini m.a. með hjálp hlustunargrunna (e. listening platforms) og hvort þau gögn sem safnað er við hlustun geti haft áhrif á nýsköpun í þjónustu og viðskiptaþróun í ferðaþjónustu.
Bláa lónið
Edda Sólveig Gísladóttir, markaðsstjóri.
Erindi: Breytingar á ytra umhverfi og tól markaðsfræðinnar. Jafnvægið á milli mörkunar og sölu. Edda Sólveig hefur starfað hjá Bláa lóninu í tíu ár og sem markaðsstjóri í sex ár. Hún ætlar að líta til baka og segja okkur frá hvernig áherslur í markaðssetningu hafa breyst í takt við breytingar í efnahagslegu umhverfi og tíðaranda.
Háskóli Íslands
Nemandi: Ellert Rúnarsson
Leiðbeinandi: Friðrik Eysteinsson
Gráða: M.Sc. í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum
Verkefni: Markaðshneigð og markaðsleg færni lítilla, meðalstórra og stórra fyrirtækja. Tilgangur rannsóknarinnar var að komast að því hvort markaðshneigð hafi bein tengsl við árangur eða hvort tengslin séu óbein í gegnum markaðslega færni. Einnig að kanna hver séu víxlhrif (moderation effect) stærðar fyrirtækja við fylgni markaðshneigðar, markaðslegrar færni og árangurs. Gerð var megindleg rannsókn og var þýði hennar öll lítil, meðalstór og stór íslensk fyrirtæki.
Síminn
Magnús Magnússon, markaðsdeild/markaðsþróun
Erindi: Magnús fjallar um farsímatækni og markaðsfræði í praktísku umhverfi, hvernig endurhugsa má birtingar og miðla með snjallsímavæðingunni.
Háskólinn í Reykjavík
Nemandi: Gylfi Aron Gylfason
Gráða: M.Sc. í Viðskiptafræði
Verkefni: Innkaupahegðun danskra og íslenskra neytenda á netinu og lýðfræðilegir áhrifaþættir.
15.12.2011
Lúður 2011
Lokað hefur verið fyrir innsendingar í Lúður 2011.
Tekið var á móti innsendingum á sérstöku vefsvæði hjá Outcome, sem sett er upp fyrir keppnina, dagana 20.desember-16.janúar.
Nánari upplýsingar um Lúðurinn 2011, smellið hér.
Nánari upplýsingar um þátttöku í Lúðrinum 2011, smellið hér.
29.11.2011
Heimsókn í Markaðsfyrirtæki ársins 2011
Um 35 manns kíktu í heimsókn til Icelandair þriðjudaginn 6.desember á Icelandair Hotel Reykjavík Natura þar sem kynnt var fyrir félögum ÍMARK starfsemi fyrirtækisins og hvernig markaðsstarfinu er háttað.
Íslensku markaðsverðlaunin voru afhent af forseta Íslands, hr.Ólafi Ragnari Grímssyni, 3.nóvember síðastliðinn og var Icelandair valið markaðsfyrirtæki ársins 2011. Sem fyrr eru þau veitt fyrirtækjum sem hafa verið áberandi á árinu og sannað þykir að sýnilegur árangur hafi náðst. Við ákvörðun um verðlaunahafa er tekið mið af fagmennsku við markaðsmálin og að fjárhagslegt öryggi sé til staðar.
Hér má sjá myndir frá heimsókninni.
24.11.2011
Mannamót
Hugmyndin með Mannamóti er að skapa vettvang þar sem fólk að spjallar saman í þægilegu og óformlegu umhverfi.
Haustið 2011 setti ÍMARK í gang Mannamót til að koma á laggirnar hlutlausum vettvangi þar sem félagar í hinum ýmsu samtökum geta hist og spjallað, myndað vinskap og styrkt tengslanetið.
Samstarfssamtök; ÍMARK, Almannatengslafélagið, SÍA, SVEF, Hönnunarmiðstöð, Ský, FVH, RUMBA Alumni, MBA félag HÍ, Stjórnvísi, Klak, Innovit, KVENN, SFH, FKA.
Stefnt er að því að hefja hvert Mannamót á stuttri kynningu, þar sem sagt er frá reynslusögu fyrirtækis, rannsókn, hugmyndafræði eða öðru áhugaverðu. Þetta er breytilegt hvert sinn en byrjar kl.17.15 svo fólk skal mæta tímalega. Athugið að þessi viðburður er ókeypis og ekki þarf að skrá sig - bara mæta!
Mannamótin verða alltaf síðasta miðvikudag í mánuði í vetur, á sama stað og á sama tíma.
Hvar: Kex hostel á Skúlagötu 28
Hvenær: Síðasta miðvikudag í mánuði
Tími: kl.17-18.30
Hittumst! Gott tengslanet er gulls ígildi!
25.01.2012 - Um 35 manns kíktu við á Mannamót þrátt fyrir erfiða færð og hlustuðu á afar fróðleg og skemmtileg erindi frá Pegasus og Reykjavík Eyes. Lilja Snorradóttir framkvæmdastjóri og Snorri Þórisson forstjóri Pegasus sögðu reynslusögur úr bransanum og m.a. frá verkefninu Games of Thrones en hluti af tökum á þeim bandaríska sjónvarpsþætti fór fram hér á landi í lok síðasta árs. Lovísa Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavík Eyes ræddi um áskoranir við markaðssetningu á vörumerkinu erlendis og m.a. frá ýmsu sem kom upp eftir að hryðjuverkalögin voru sett á Ísland í Bretlandi. Reykjavík Eyes er fyrsta heilstæða íslenska gleraugnalínan og hefur hún vakið mikla athygli erlendis fyrir byltingarkennda hönnun á gleraugnaumgjörðum.
28.12.2011 - Fellur niður vegna jólahátíðar.
30.11.2011 - Rétt um 80 manns kíktu við á Kex til að skemmta sér við að spjalla og hlusta á erindi Elísabetar um "gamification" og Finns um Twitter. Mjög áhugaverð erindi með lærdómsríkar dæmisögur. Elísabet Grétarsdóttir er markaðsstjóri CCP og Finnur Pálmi Magnússon er vörustjóri hjá Marorku.
Hér má sjá myndir: http://imark.is/Forsida/Myndaalbum/Myndir/~/categoryid/358
Glærur Finns: http://www.gommit.com/2011/11/twitter-iceland/
Glærur Elísabetar: Gamification.pptx
26.10.2011 - Yfir 70 manns hittust á Mannamóti að spjalla og hlusta á tvær bráðskemmtilegar kynningar frá Magnúsi Árnasyni Chief Brand Officer hjá Latabæ og Pálma Guðmundssyni sjónvarpsstjóra á Stöð 2. Góð stemming, hér má sjá myndir: http://imark.is/Forsida/Myndaalbum/Myndir/~/categoryid/355
28.9.2011 - var fyrsta Mannamót þar sem Kristinn Vilbergsson framkvæmdastjóri Kex hostels hélt kynningu á konsepti fyrirtækisins. Það var vel sótt, um 60 manns kíktu við og spjölluðu í góðum hópi. Skemmtileg stemming, hér má sjá nokkrar myndir: http://imark.is/Forsida/Myndaalbum/Myndir/~/categoryid/352