Birtingar í brennidepli

ÍMARK boðar til morgunfundar í Grósku þann 7. maí þar sem birtingar og þróun þeirra verða teknar til umræðu.

Markmið fundarins er að taka opið og heiðarlegt samtal um hvert íslenskt auglýsingafé er að fara og hvaða áhrif sú þróun hefur á íslenska miðla, auglýsendur og markaðsumhverfið í heild. Á tímum hraðra breytinga, aukinnar sjálfvirkni og nýrra dreifileiða er ljóst að landslag birtinga er að taka miklum breytingum.


Á fundinum verða tvö pallborð:

Pallborð I – Hefðbundnir / íslenskir miðlar
Einar Logi Vignisson –
RÚV
Silja Jóhannesdóttir –
Morgunblaðið / mbl.is
Kári Jónsson –
Síminn
Guðmundur Halldór Björnsson –
SÝN


Pallborð II – Stýring markaðsmála
Anna Fríða Gísladóttir –
Nói Siríus
Ívar Gestsson –
Birtingahúsið
Andri Már Kristinsson –
Digido
Jóhannes Karl Sigursteinsson –
ENNEMM, fyrir hönd SÍA


Fundurinn er vettvangur fyrir ólík sjónarmið og opna umræðu.


📍 Gróska – Parketið
🕣 Kaffi og morgunhressing kl. 08:30
🕘 Dagskrá 09:00–10:30


Verð:
Félagar ÍMARK: 1.990 kr
Aðrir: 7.990 kr (Það borgar sig að vera í aðild hjá ÍMARK) Skráðu þig í ÍMARK hér


Nældu þér í miða hér