Pipar/TBWA er Auglýsingastofa ársins 2025 og Krónan Vörumerki ársins 2025



Verðlaun fyrir Auglýsingastofu ársins og Vörumerki ársins voru afhent á ÍMARK deginum 2026 sem fram fór 6. mars í Háskólabíó.

Verðlaun fyrir Auglýsingastofu ársins og Vörumerki ársins eru veitt ár hvert á ÍMARK deginum. Að verðlaununum standa ÍMARK í samstarfi við Prósent, sem unnu mælingarnar sameiginlega.


Í ár hlaut Pipar/TBWA titilinn Auglýsingastofa ársins 2025 og Krónan var valið Vörumerki ársins 2025.

Verðlaunin fyrir Auglýsingastofu ársins eru veitt fyrir framúrskarandi þjónustu, hugmyndaauðgi, fagleg vinnubrögð og árangur í verkefnum fyrir viðskiptavini á nýliðnu ári. Þetta var þriðjá árið í röð sem Pipar/TBWA vinnur titilinn Auglýsingastofa ársins.


Verðlaun fyrir Vörumerki ársins eru veitt því vörumerki sem hefur skarað fram úr í markaðssetningu, sýnileika og uppbyggingu sterkrar stöðu á markaði.


Verðlaunin voru afhent á ÍMARK deginum 2026, sem fór fram með glæsibrag í Háskólabíó 6. mars.

ÍMARK óskar Pipar/TBWA og Krónunni innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.