Lúðurinn 2025: Pipar/TBWA sigursælasta stofan – Colas herferðin ¡Hola! hlaut flest verðlaun

Árleg verðlaunahátíð markaðs- og auglýsingageirans, Lúðurinn, fór fram í 40. sinn í ár á vegum Samtaka íslensks markaðsfólks. Þar voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi hugmyndir, sköpun og árangur í íslenskri markaðs- og auglýsingagerð á liðnu ári.


Sigursælasta herferð kvöldsins var ¡Hola! sem auglýsingastofan Pipar/TBWA vann fyrir malbikunarfyrirtækið Colas. Herferðin hlaut fjóra Lúðra í mismunandi flokkum og bætti við sig verðlaunum í flokknum - Áran – verðlaun fyrir árangursríkustu herferð ársins.


Pipar/TBWA hlaut einnig tvö verðlaun fyrir herferðina Ég trúi á minn hátt sem unnin var fyrir Þjóðkirkjuna, auk verðlauna í flokki Mörkunar fyrir verkefni fyrir Þjóðkirkjuna. Stofan fékk einnig silfurverðlaun fyrir auglýsinguna Ég á lítinn skrítinn skugga fyrir Kraft.


Samtals hlaut Pipar/TBWA sjö Lúðra auk einna silfurverðlauna og var því jafnframt valin Auglýsingastofa ársins þriðja árið í röð.


Brandenburg með fimm Lúðra

Auglýsingastofan Brandenburg hlaut alls fimm Lúðra á Lúðrinum í ár, þar á meðal einn Silfurlúður. Stofan hlaut Lúður fyrir prentauglýsinguna Missum ekki málið sem unnin var fyrir Heimar, auk þess sem verkefnið Sæt kveðja fyrir Nói Síríus hlaut verðlaun í flokknum Veggspjöld og skilti. Þá fékk herferðin Fátæktargildra, sem unnin var fyrir Öryrkjabandalag Íslands, tvö Lúðurverðlaun; annars vegar í flokki PR – almannatengsla og hins vegar í flokki almannaheillaauglýsinga opinn flokkur. Að auki hlaut verkefnið Opal x Epal, samstarf Nói Síríus og Epal, silfurverðlaun í flokknum prentauglýsingar.


Auglýsingastofan Tvist hlaut tvo Lúðra á Lúðrinum í ár fyrir herferðina Mottumars, sem unnin var fyrir Krabbameinsfélag Íslands, en verkefnið fékk verðlaun bæði í flokki kvikmyndaðra almannaheillaauglýsinga og í flokki almannaheilla – herferða. Þá hlaut auglýsingin Leiðin í milljón, sem unnin var fyrir Hekla, Silfurlúður í flokki kvikmyndaðra auglýsinga – lengri.


Auglýsingastofan
ENNEMM hlaut tvo Lúðra á Lúðrinum í ár, annars vegar fyrir auglýsinguna Sögulegur samruni sem unnin var fyrir Sýn, og hins vegar fyrir Collab x Birnir, sem unnin var fyrir Ölgerðin. Auk þess hlaut Sögulegur samruni einnig verðlaunin Val fólksins, þar sem almenningur kýs sína uppáhalds sjónvarpsauglýsingu ársins.


Aðrir verðlaunahafar á hátíðinni voru meðal annars:

  • Cirkus fyrir herferðina Við höldum verðinu niðri fyrir Prís
  • Hvíta húsið fyrir Vítamínvagn fyrir Icelandair
  • Peel fyrir Love Iceland með silfurverðlaun fyrir Íslandsstofu


Lúðurinn er ein virtasta viðurkenning íslenskrar markaðs- og auglýsingagreinar og eru verðlaunin veitt á grundvelli mats dómnefndar sem skipuð er fagfólki úr greininni.