LÚÐURINN
05.MARS 2027
Helstu upplýsingar um Lúðurinn og Áruna
Lúðurinn eru verðlaun sem veita frumlegum, skapandi og snjöllum hugmyndum, sem eru útfærðar á framúrskarandi hátt, viðurkenningu.
Flokkar Lúðursins
Lúðurinn er veittur í 17 flokkum sem endurspegla breidd íslensks markaðs- og auglýsingabransa.
Flokkarnir spanna meðal annars:
- Kvikmyndaðar auglýsingar
- Hljóðauglýsingar
- Prentauglýsingar
- Stafrænar auglýsingar
- Umhverfisauglýsingar
- Veggspjöld og skilti
- Viðburði
- Beina markaðssetningu
- Mörkun
- PR
- Herferðir
- Almannaheillaauglýsingar
- ÁRU
Á sérsíðu flokkanna finnur þú:
- ✔️ Lýsingu á hverjum flokki
- ✔️ Innsendingarreglur
- ✔️ Helstu skilyrði
- ✔️ Sigurverkefni síðasta árs
Skoða tilnefningar og sigurvegara
Sjá tilnefningar og vinningshafa frá síðasta ári í AwardHub.
Opna AwardHubInnsendingarkerfi – góð ráð og svör
Allar innsendingar í Lúðurinn og ÁRU fara fram í AwardHub. ÁRAN er skráð sem sérstakur flokkur í innsendingarkerfinu.
Byrjaðu hér
- Farðu á AwardHub.
- Veldu „Þátttakendur innskráning“.
- Skráðu fyrirtækið með kennitölu þess aðila sem reikningur á að fara á.
Góð ráð
- Mælt er með að hver stofa eða fyrirtæki noti eitt netfang fyrir allar innsendingar.
- Ekki er mælt með að fleiri en einn vinni í sömu innsendingu á sama tíma.
- Búðu til grúbbu fyrir hvert verkefni eða viðskiptavin.
- Hægt er að afrita innsendingar og nýta efni aftur í fleiri flokkum.
Ef fyrirtækið tilheyrir ekki alþjóðlegu stofuneti skal velja Independent / None.
Spurningar? Hafðu samband við Maríu hjá ÍMARK.
maria@imark.is · 848 2218
Mikilvægar innsendingarreglur
Myndir
- JPEG eða PNG.
- Hámarksstærð 5 MB.
- Mælt er með 1920 × 1080 px.
Myndbönd
- MP4 eða MOV.
- Hámarksstærð 500 MB.
Aðalmynd
Öllum innsendingum þarf að fylgja aðalmynd í stærðinni 1920 × 1080 px. Hún er notuð í kynningu, prenti og á sýningartjaldi á verðlaunakvöldi.
Mikilvægt
- Óheimilt er að setja inn árangurstölur í Lúðursflokkum.
- Ekki má skila inn case study-myndbandi nema það sé sérstaklega tekið fram.
- Ekki er heimilt að hljóðsetja efni með öðrum hljóðum en þeim sem birtust upprunalega.
- Nákvæmur kreditlisti skal fylgja öllum innsendingum.
ÍMARK áskilur sér rétt til að birta innsent efni í tengslum við kynningu keppninnar. Dómnefnd getur ógilt innsendingar sem uppfylla ekki reglur eða eru sendar í rangan flokk.
Hver fær Lúðurinn afhentan?
Lúðurinn er afhentur auglýsingastofunni, nema fyrirtæki og auglýsingastofa komi sér saman um annað.
Óski fyrirtæki eftir eigin styttu er hægt að panta aukastyttu hjá ÍMARK.
Verð: 60.000 kr. + VSK.
Pöntunarfrestur: 15. mars 2027.
Dómnefnd og dómnefndarstörf
Dómnefnd Lúðursins samanstendur af reynslumiklu fagfólki úr íslenskum markaðs- og auglýsingabransa.
Markmið nefndarinnar er að velja verðlaunahafa á faglegum forsendum og tryggja að niðurstaðan endurspegli sameiginlegt mat dómnefndar.
Hvernig verður ÁRUNNI háttað?
ÁRAN er árangursverðlaun ÍMARK og verðlaunar markaðsverkefni sem hafa skilað framúrskarandi árangri.
Við matið er meðal annars horft til árangurs herferðar, stefnumótunar, markaðsrannsókna, birtingaráætlana, hugmyndavinnu og viðskiptalegs árangurs.
Hvað kostar að senda inn?
Verðskrá fyrir Lúðurinn og ÁRU 2027 verður birt síðar.
Early Bird
Kemur síðar.
Hefðbundið verð
Kemur síðar.
Magnafsláttur og nánari upplýsingar verða birt þegar innsendingar opna.
Hvenær verður Lúðurinn haldinn?
Lúðurinn 2027 verður haldinn föstudaginn 5. mars 2027.
Háskólabíó