LÚÐURINN
Flokkar
Verðlaun eru veitt í 17 flokkum. Hér má finna yfirlit yfir hvern flokk, skilgreiningu, helstu innsendingarreglur og sigurvegara síðasta árs þar sem við á.
01Kvikmyndaðar auglýsingar – Lengri
Auglýsingar 30–180 sek., leiknar, ljósmyndaðar eða teiknaðar, sem birtar eru í keyptum miðlum.
- Sjónvarp, kvikmyndahús, samfélagsmiðlar og aðrir stafrænir miðlar.
- Hámark þrjár auglýsingar ef þær eru hluti af sömu herferð.
- Samanlögð lengd má ekki fara yfir 3 mínútur.
- Ekki má senda sömu auglýsingu í bæði styttri og lengri flokk.
02Kvikmyndaðar auglýsingar – Styttri
Auglýsingar 0–45 sek., leiknar, ljósmyndaðar eða teiknaðar, sem birtar eru í keyptum miðlum.
- Getur verið sería af stuttum auglýsingum í sömu herferð.
- Hámark fimm auglýsingar.
- Auglýsingarnar skulu vera hugsaðar sem stuttar auglýsingar frá upphafi.
- Samanlögð lengd má ekki fara yfir 3 mínútur.
- Ekki má senda sömu auglýsingu í bæði styttri og lengri flokk.
03Hljóðauglýsingar
Auglýsingar sem eru gerðar sérstaklega fyrir og birtar á keyptum hljóðmiðlum, svo sem útvarpi og stafrænum miðlum.
- Hljóðrásir af sjónvarpsauglýsingum eru ekki gildar.
- Innsending er takmörkuð við 1–3 auglýsingar sömu herferðar.
- Auglýsingarnar skulu settar saman í eina skrá.
- Hámarkstími í spilun má ekki fara yfir 2 mínútur.
04Prentauglýsingar
Auglýsingar sem gerðar eru til birtingar í dagblöðum og/eða tímaritum.
- Innsending er takmörkuð við þrjár auglýsingar ef þær eru hluti af sömu herferð.
05Stafræn auglýsing
Auglýsing sem nýtir stafræna miðla til að koma skilaboðum til skila, vekja hughrif hjá markhópi eða styrkja ímynd, án þess að krefjast þátttöku.
- Undir flokkinn falla vefborðar, samfélagsmiðlar, míkrósíður o.fl.
- Innsending er takmörkuð við 1–5 auglýsingar sömu herferðar.
- Hámarkstími myndbanda í spilun má ekki fara yfir 3 mínútur.
06Stafræn auglýsing – Gagnvirk
Auglýsingar sem nýta stafræna miðla til að virkja markhóp til þátttöku á einhvern hátt.
- Undir flokkinn falla vefborðar, samfélagsmiðlar, míkrósíður, leikir, smáforrit o.fl.
- Dæmt er út frá skapandi hugmynd og útfærslu.
- Sýna má viðbrögð markhóps til að útskýra útfærslu, án þess að birta árangurstölur.
- Innsending er takmörkuð við 1–5 auglýsingar sömu herferðar.
- Hámarkstími myndbanda í spilun má ekki fara yfir 3 mínútur.
07Umhverfisauglýsingar
Þrívíð grafík eða innsetning í umhverfi til auglýsinga á vöru og/eða þjónustu.
- Innsending er takmörkuð við þrjár auglýsingar ef þær eru hluti af sömu herferð.
08Veggspjöld og skilti
Tvívíð grafík, til dæmis hefðbundin plaköt og/eða umhverfisskilti.
- Innsending er takmörkuð við þrjár auglýsingar ef þær eru hluti af sömu herferð.
09Viðburðir
Sýningarbásar eða viðburðir sem vekja athygli á vöru og/eða þjónustu eða byggja upp ímynd fyrirtækis með því að virkja skilgreindan markhóp til þátttöku.
- Ef myndband er notað til útskýringar skal samanlagður spilunartími ekki vera lengri en 2 mínútur.
10Bein markaðssetning
Bein markaðssetning er til dæmis markpóstur á prentuðu eða rafrænu formi, hlutur eða gjörningur sem sendur er á fyrirfram skilgreindan hóp.
- Lágmarksfjöldi markhóps er 30 einstaklingar eða fyrirtæki.
11Mörkun – ásýnd vörumerkis
Mörkun eða endurmörkun fyrirtækis tekur til nýrra eða eldri vörumerkja.
- Um er að ræða breytingar á heildarásýnd vörumerkis, merki, útliti, tóni o.s.frv.
- Sýna skal útlit fyrir og eftir breytingu ef um endurmörkun er að ræða.
- Leyfilegt er að senda inn hreyfða útfærslu á merki og myndband sem sýnir mörkunina.
- Hámarksspilunartími má ekki vera lengri en 2 mínútur.
12PR
Innsendingar skulu sýna hvernig strategísk PR-vinnubrögð og skapandi aðferðir hafa verið notaðar til að koma tilteknum boðskap á framfæri.
- Horft er til frumleika, sköpunar og útfærslu hugmyndarinnar.
- PR-hugmyndin ætti að hafa skapað áunna umfjöllun.
- Leyfilegt er að sýna umfjöllun og hvernig hún leiddi af hugmyndinni.
- Innsending er takmörkuð við 1–10 skrár innan sömu herferðar.
- Leyfilegt er að senda inn útskýringarmyndband, en samanlagður spilunartími má ekki fara yfir 3 mínútur.
13Herferð
Herferð sýnir hvernig ólíkir miðlar voru nýttir á skapandi og viðeigandi hátt til að mynda eina heild.
- Ekki skal senda inn kynningarmyndband á herferðinni í heild.
- Einungis skal senda inn stakar myndir og myndbönd af einstökum hlutum hennar.
- Innsending er takmörkuð við 1–15 skrár innan sömu herferðar.
- Hámarkstími í spilun má ekki fara yfir 7 mínútur.
14Almannaheillaauglýsingar – Kvikmynduð auglýsing
Kvikmyndaðar auglýsingar, leiknar, ljósmyndaðar eða teiknaðar, sem birtar eru í keyptum miðlum.
- Undir almannaheillaflokka falla auglýsingar félagasamtaka í almannaþágu og opinberra aðila sem stuðla að almannaheill.
- Auglýsingar opinberra aðila sem eiga einungis að bæta ímynd eða skila fjárhagslegum ávinningi falla ekki hér undir.
- Innsending er takmörkuð við fimm auglýsingar ef þær eru hluti af sömu herferð.
- Samanlögð lengd auglýsinga má ekki fara yfir 3 mínútur.
Ertu að grínast með þinn lífsstíl? – Mottumars
Krabbameinsfélagið · Tvist
Skoða sigurverkefni →15Almannaheillaauglýsingar – Herferðir
Herferð sem sýnir hvernig ólíkir miðlar voru nýttir á skapandi og viðeigandi hátt til að mynda eina heild og hafa áhrif á viðhorf.
- Ekki skal senda inn kynningarmyndband á herferðinni í heild.
- Einungis skal senda inn stakar myndir og myndbönd af einstökum hlutum hennar.
- Innsending er takmörkuð við 1–15 skrár innan sömu herferðar.
- Hámarkstími í spilun má ekki fara yfir 7 mínútur.
- Herferð má eiga við 2 ár aftur í tímann.
16Almannaheillaauglýsingar – Opinn flokkur
Stakar almannaheillaauglýsingar aðrar en kvikmyndaðar auglýsingar, t.d. prentaðar auglýsingar, stafrænar auglýsingar eða umhverfisgrafík.
- Sömu reglur gilda og fyrir þann flokk sem efnið hefði fallið undir ef það væri ekki almannaheillaefni.
- Innsending er takmörkuð við 1–10 skrár innan sömu herferðar.
- Hámarkstími í spilun má ekki fara yfir 3 mínútur.
- Taka skal fram í skýringu hvar innsendingin ætti heima ef hún væri ekki í opnum almannaheillaflokki.
17ÁRA
Árangursverðlaunum er ætlað að beina sjónum að herferðum sem hafa skilað framúrskarandi árangri.
- Lykilþáttur í mati dómnefndar er sönnun á árangri herferðarinnar.
- Horft er til áætlanagerðar, markaðsrannsókna, birtingaáætlana, hugmyndaauðgi og viðskiptastjórnunar.