Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, markaðsmanneskja ársins 2023

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair var valinn markaðsmanneskja ársins 2023 hjá ÍMARK. Bogi hefur í starfi sínu sem forstjóri tekist á við krefjandi aðstæður í rekstri og á sama tíma og fyrirtækið hefur haldið áfram uppbyggingu alþjóðlegs leiðakerfis með Ísland sem miðpunkt. Vörumerki Icelandair er eitt þekktasta vörumerki á Íslandi sem nýlega fór í gegnum endurmörkun.

 

Valið á markaðsmanneskju ársins er niðurstaða dómnefndar sem skipuð var einstaklingum sem koma víðsvegar að úr atvinnulífinu og háskólasamfélaginu. Katrín M. Guðjónsdóttir, formaður stjórnar ÍMARK afhenti Boga verðlaunin á viðburði ÍMARK í dag.

Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingi sem þykir hafa sýnt framúrskarandi árangur í markaðsstarfi síðustu tvö ár, en við valið er leitast við að fá sem fjölbreyttastar skoðanir úr atvinnulífinu. Fjölmargar tilnefningar bárust í ár frá félagsmönnum ÍMARK enda gróska í markaðsmálum og jafnframt áskoranir miklar á síðustu tveimur árum.



Rökstuðningur dómnefndar:


Það var niðurstaða dómnefndar að velja Boga Nils Bogason markaðsmanneskju ársins. Icelandair hefur gengið í gegnum mikla umrótartíma undanfarin ár en þrátt fyrir að flugstarfsemi hafi dregist mikið saman á tímum heimsfaraldurs lögðu stjórnendur fyrirtækisins áherslu á mikilvægi markaðssetningar. Þannig hélt fyrirtækið markaðsstarfi áfram og var tilbúið að blása til sóknar um leið og færi gafst. Á sama tíma var fyrirtækið í miðju endurmörkunarferli sem tekin var meðvituð ákvörðun um að halda áfram með enda myndi það styrkja stöðu félagsins þegar ferðalög hæfust á ný, sem varð og raunin. Bogi varð sýnilegri í fjölmiðlum og tók á sig ábyrgð sem forstjóri með því að flytja tíðindi sem voru oft ekki góð og koma flóknum upplýsingum til farþega og almennings af auðmýkt og virðingu. Þannig steig Bogi fastar inn í hlutverk sitt sem leiðtogi og talaði beint til viðskiptavina. Í gegnum heimsfaraldurinn gegndi Icelandair einnig lykilhlutverki í að halda tilvonandi ferðamönnum upplýstum um stöðuna og lagði áherslu á að markaðssetja Ísland sem ferðamannaland ekki síður en fyrirtækið sjálft.


Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair:


„Það er mikill heiður að taka við verðlaununum markaðsmanneskja ársins. Verðlaunin eru auðvitað fyrst og fremst til marks um það frábæra starf sem starfsfólk Icelandair hefur unnið undanfarin ár Nú er farþegafjöldi Icelandair orðinn sambærilegur við metárið 2019 – árangur sem fá flugfélög í heiminum geta státað af. Áhersla okkar í markaðsmálum er að halda merkjum Íslands á lofti um allan heim enda fara hagsmunir Icelandair og Íslands saman.“



Dómnefnd fyrir markaðsmanneskju ársins var skipuð eftirfarandi aðilum:


Formaður dómnefndar: Katrín M. Guðjónsdóttir, formaður stjórnar ÍMARK         

Andrés Jónsson. Stofnandi Góðra samskipta og stjórnendaráðgjafi

Arndís Huld Hákonardóttir. Forstöðumaður markaðsmála og PR hjá Bláa lóninu

Erling Agustsson – Markaðsfulltrúi hjá Morgunblaðinu

Gerður Arinbjarnardóttir– Eigandi Blush (Markaðsmanneskja ársins 2021)

Gísli S. Brynjólfsson- Forstöðumaður markaðsmála hjá Icelandair sem sat hjá við endanlegt val

Guðný Helga Herbertsdóttir- Forstjóri VÍS

Kristján Hjálmarsson- fyrrverandi Framkvæmdastjóri Hér og Nú

Ragnar Már Vilhjálmsson- Aðjúnkt Háskólanum á Bifröst


Share by: