Örfá sæti laus á morgunfundi ÍMARK um birtingar

Örfá sæti laus á morgunfundi ÍMARK um birtingar

Mikil spenna er fyrir morgunfundi ÍMARK um birtingar sem fram fer í Grósku þann 7. maí og eru nú aðeins örfá sæti laus.



Á fundinum verður tekið opið og heiðarlegt samtal um hvert íslenskt auglýsingafé er að fara og hvaða áhrif sú þróun hefur á íslenska miðla, auglýsendur og markaðsumhverfið í heild.


Fulltrúar frá  RÚV, Morgunblaðinu / mbl.is, SÝN, Nóa Siríus, Digido, Birtingahúsinu og SÍA taka þátt í tveimur pallborðum þar sem ólík sjónarmið verða rædd.


Fundurinn fer fram í Grósku, Parketi í Mýrinni frá kl. 08:30–10:30.


Miðasala er á tix.is