Einn nýr stjórnarmaður var kosin í stjórn félagsins, Rósa Hrund Kristjánsdóttir, Hugmynda- og hönnunarstjóri hjá Hvíta húsinu og kemur hún í stað Sigríðar Theódóru, framkvæmdastjóra á Brandenburg sem stígur úr stjórn félagsins.
Katrín M. Guðjónsdóttir er formaður ÍMARK en auk hennar skipa stjórnina Arndís Huld Hákonardóttir, forstöðumaður markaðsmála og PR hjá Bláa Lóninu, Daði Guðjónsson, forstöðumaður markaðs- og umhverfismála hjá Krónunni, Guðlaugur Aðalsteinsson, Cirkusstjóri hjá CIRKUS auglýsingastofu, Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri vörusviðs, markaðsmála og stafrænna lausna hjá Lyfju, Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar og Rósa Hrund Kristjánsdóttir, hugmynda- og hönnunarstjóri hjá Hvíta húsinu.
“Við hlökkum til starfsársins enda er mikil gróska og nýsköpun í heimi markaðsmála. Ég vil nota tækifærið og þakka Sigríði Theódóru fyrir óeigingjarnt starf í þágu ÍMARK og bjóða Rósu Hrund velkomna” segir Katrín M. Guðjónsdóttir formaður ÍMARK.