Aðalfundur ÍMARK 2026

Aðalfundur verður haldinn miðvikudaginn 18. júní kl. 15:00-17:00 í Fenjamýri í Gróska.
Á fundinum verður farið yfir starfsemi félagsins á liðnu starfsári, ársreikning lagður fram til samþykktar og horft fram á veginn inn í afmælisár ÍMARK.
Dagskrá fundarins
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningur lagður fram til samþykktar
- Ákvörðun félagsgjalda
- Kjör stjórnar
- Kosning endurskoðanda
- Önnur mál
Framboðum til stjórnar skal skila eigi síðar en þremur dögum fyrir fund.
Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda póst á [email protected]
