Morgunfundur - Birtingar í brennidepli - takk fyrir komuna

Fullt hús og kraftmiklar umræður á morgunfundi ÍMARK, Birtingar í brennidepli, sem fram fór í Grósku þann 7. maí.



Á fundinum var rætt opinskátt um þróun birtingamála og þær miklu breytingar sem eru að eiga sér stað í fjölmiðla- og markaðsumhverfinu. Meðal þess sem rætt var um var hvernig sífellt stærri hluti íslensks birtingafjár færist til erlendra miðla og hvaða áhrif sú þróun hefur á íslenska miðla, auglýsendur og markaðinn í heild.


Einnig var rætt um tilkomu nýrra miðla og tæknilausna - meðal annars hlaðvarpa, aukinnar sjálfvirkni og nákvæmari gagnagreininga sem gera markaðsfólki kleift að miða enn betur á skilgreinda markhópa og mæla árangur með nýjum hætti.


Fram komu fjölbreytt sjónarmið um bæði áskoranir og tækifæri framtíðarinnar, auk mikilvægi þess að eiga áfram öfluga íslenska miðla sem styðja við íslenskt samfélag, menningu og tungumál.

Við þökkum öllum þátttakendum og gestum kærlega fyrir frábæra mætingu, góðar spurningar og líflegt samtal.