Haustviðburður ÍMARK 2025

Haustfundur ÍMARK fer fram 9. september kl. 15:00–16:30 í Arion banka Borgartúni

Á haustfundi ÍMARK í september verður kastljósinu beint að mörkun – frá skapandi hugmyndavinnu til stefnumiðaðrar ímyndaruppbyggingar.

Dagskráin spannar þrjú ólík sjónarhorn: verðlaunuð mörkun sem hefur sannað gildi sitt, nýlega endurmörkun sem er að mótast í huga almennings og alþjóðlegan innblástur um hvernig ásýnd getur skapað raunverulegt virði.

Staðsetning: Arion banki, Borgartúni 19

Timi: 15:00-16:30

Opnun:Formaður ÍMARK - Katrín M. Guðjónsdóttir

HEIMAR / BRANDENBURG

Sigurverkefni í flokki Mörkunar á Lúðrinum 2025
Jón Ari Helgason, Sköpunarstjóri hjá Brandenburg kynnir ferlið og lærdóminn sem skilaði þeim Lúðrinum.

SÝN – ENDURMÖRKUN

Endurmörkun SÝN – ferlið, áskoranir og staða.
Kynnt af Guðmundi H. Björnssyni, framkvæmdastjóra upplifunar viðskiptavina hjá SÝN.

PERSONAL TAKE ON IDENTITY

João Linneu er brasilískur Creative & Art Director með yfir 20 ára reynslu frá alþjóðlegum auglýsingastofum á borð við Saatchi & Saatchi, BBDO og JWT. Hann hefur unnið að mörkun fyrir stórmerki á borð við Nike, Leica, Volkswagen, Unilever og P&G, og hlotið verðlaun á borð við Cannes Lions, Clio, One Show og fleiri. João starfar núna á Hvíta húsinu.

Aðgangur og skráning:

3.900 kr. fyrir aðildarfélaga ÍMARK

8.900 kr. fyrir aðra

Miðasala er hafin áTix.isoger almennt miðaverð 8.900 kr. og3.900 kr. fyrir aðildarfélaga ÍMARK.

Previous
Previous

Vertu með ÍMARK í vetur

Next
Next

Aðalfundur ÍMARK