Ímark 2025 - uppskeruhátíð markaðsfólks á Íslandi

Ímark dagurinn 2025 – uppskeruhátíð markaðsfólks á Íslandi.

Ímark dagurinn 2025 verður haldinn föstudaginn 7. mars í Háskólabíói, þar sem bestu hljóð- og myndgæði landsins tryggja einstaka upplifun fyrir fagfólkið okkar.

Fyrri hluti dagsins verður helgaður fjölbreyttri og fræðandi dagskrá með ráðstefnuerindum frá sérfræðingum sem deila nýjustu straumum og dýrmætri innsýn í markaðsmál.

Um kvöldið blásum við svo til lúðursins með árlegri verðlaunahátíð, þar sem framúrskarandi hæfileikar og árangur markaðsfólks eru heiðraðir. Þetta er viðburður sem enginn í faginu ætti að láta fram hjá sér fara!

Previous
Previous

ÍMARK býður þér í hamingjustund á Port9!

Next
Next

Nýr verkefna- og viðburðastjóri gengur til liðs við Ímark!