Lúðurinn 2022
Lúðrahátíðin 2022 fór fram í Háskólabíói þann 24 mars. Gífurleg stemming var í húsinu en um 500 markaðsmanneskjur voru samankomnar til að fagna þeim verkefnum sem þóttu framúrskarandi á árinu 2022. Kynnar kvöldsins voru Vigdís Hafliðadóttir og Guðmundur Felixsson en hér má sjá myndir frá kvöldinu í umfjöllunSmartlands.
Veittir voru lúðrar í 17 flokkum á hátíðinni en Áran var afhent á ÍMARK deginum eins og venja er.
Hér að neðan má sjá lista yfir þau verkefni sem hlutu Lúður/ Áru en nánari upplýsingar um verkefnin og tilnefningar má sjáhér.
Flokkur og heiti herferðar
KVIKMYNDAÐAR AUGLÝSINGAR 2022Takk Egill
ÚTVARPS AUGLÝSINGAR 2022Blótaðu almennilega
PRENTAUGLÝSINGAR 2022Iceland Airwaves-augmented reality
VEF- OG SAMFÉLAGSMIÐLA- MYNDBÖND 2022Outhorse your email
VEF- OG SAMFÉLAGSMIÐLAR - ALMENNT 2022Dagur íslenskrar tungu
STAFRÆNAR AUGLÝSINGAR 2022Árið þitt 2022
UMHVERFISAUGLÝSINGAR 2022Peningaveggurinn
VEGGSPJÖLD OG SKILTI 2022Heima er pest
VIÐBURÐIR 2022Iceland is just around the corner
BEIN MARKAÐSSETNING 2022Heima er pest
MÖRKUN - ÁSÝND VÖRUMERKIS 2022Icelandair - endurmörkun
PR 2022Finndu muninn
HERFERÐ 2022Heima er pest
ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - KVIKMYNDUÐ AUGLÝSING 2022Það má ekkert lengur
ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - HERFERÐIR 2022Það má ekkert lengur
ALMANNAHEILLAAUGLÝSINGAR - OPINN FLOKKUR 2022Römpum upp Ísland
SJÓNVARPSAUGLÝSING 2022- VAL FÓLKSINSTakk Egill
ÁRAN 2022Óþolandi ódýrt
Lúðurinn í fjölmiðlum
ÍMARK og Árvakur skrifuðu undir samstarf vegna ÍMARK dagsins og Lúðursins sem gaf af sér skemmtilegar umfjallanir:
Þessar auglýsingar þóttu bestar á árinu
Lesendur mbl.is völdu "Takk Egill" sem bestu auglýsingu ársins