Maskínukönnun um Auglýsingastofu og Vörumerki ársins stendur yfir!

Þessa dagana stendur yfir árleg könnunMaskínuþar sem valin eruAuglýsingastofa ársinsogVörumerki ársins. Úrslitin verða kynnt á ÍMARK deginum 7.mars næstkomandi.

Við hvetjum alla ÍMARK félaga til að svara könnuninni ef þeir lenda í úrtaki – þátttakan skiptir máli!

Auglýsingastofur eru hvattar til að benda viðskiptavinum sínum á að fylgjast með tölvupóstinum sínum svo könnunin fari ekki fram hjá þeim.
Markaðsstjórar og forsvarsmenn markaðsmála sem telja sig eiga að vera í úrtakinu en hafa ekki fengið boð um þátttöku geta sent upplýsingar sínar á ÍMARK með því að senda tölvupóst ámaria@imark.is


Verðlaun fyrir auglýsingastofu ársins og vörumerki ársins eru veitt ár hvert á ÍMARK deginum.

Verðlaunin fyrir auglýsingastofu ársins eru veitt fyrir framúrskarandi þjónustu, hugmyndaauðgi, fagleg vinnubrögð og áherslu á árangur viðskiptavina á nýliðnu ári.

Verðlaun fyrir vörumerki ársins eru veitt fyrir framúrskarandi markaðssetningu.

https://www.imark.is/verdlaunimark

Previous
Previous

ÍMARK DAGURINN 2025 - MIÐASALA

Next
Next

Lúðurinn og Árunni: Innsendingum lokað – Dómnefnd hefst handa!