Mótum framtíðina saman

Þann 30 apríl næstkomandi verður haldin sameiginleg vorráðstefna fagfélaganna ÍMARK, Ský, Stjórnvísi, Mannauðs og FVH.

Ráðstefnan ber yfirskriftinaMótum framtíðina samanog verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica og inniheldur fjölbreytt erindi úr íslensku atvinnulífi.

Dagskrá:

Ráðstefnustjóri:Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Öldu

14:00Velkomin

14:00Tæknivædd tunga: hagnýting máltækni í daglegu lífi- Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar

Það er óhætt að segja að bylting hafi orðið í máltækni á undanförnum árum með tilkomu tauganeta og spunagreindar. Þótt íslenska sé pínulítið tungumál eru nú fjölmargar lausnir í boði fyrir íslenska málhafa. En hvernig nýtist þessi tækni í daglegu lífi og hvað þarf helst að varast?

14:20Hvernig getur vinnuaðstaðan mótað hegðun starfsmanna?Matthías Ásgeirsson, ráðgjafi í aðstöðustjórnun VSÓ

„We shape our buildings, thereafter they shape us“, eru fræg orð Winston Curchill í seinni heimsstyrjöldinni þegar ákveða átti hvernig ætti að endurbyggja þinghúsið í Englandi – þau gefa ágætis hugmynd um innihald kynningarnar. Það má segja að megin tilgangur vinnuaðstöðunnar sé hýsing viðskiptaferla sem starfsfólk vinnur eftir. Fjallað verður um áhrif vinnuaðstöðunnar á bæði skilvirkni ferla og ánægju starfsfólks. Hvernig upplifun á aðstöðunni er lykilþáttur í vinnustaðamenningu. Hvernig hönnun og umsjón á henni getur haft ráðandi áhrif á vinnuframlag starfsmanna og þar með afkomu fyrirtækja.

14:40Markaðssetning á móti risum- Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Indó

Hvernig kom lítill sparisjóður með stór markmið inn á markað til að hrista upp í honum?

Sparisjóðurinn indó opnaði 30. janúar 2023 og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á gagnsæja og sanngjarna bankaþjónustu sem er skemmtileg og laus við allt bull. Í dag hafa yfir 50.000 Íslendinga opnað reikning í indó og tíunda hver kortafærsla er nú greidd með indó korti.

15:00Kaffihlé

15:20Mikilvægi menningar- Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar

Forsenda þess að fyrirtæki nái markmiðum sínum er að menning fyrirtækisins styðji við stefnu þess. Ölgerðin hefur náð miklum vexti á undanförnum áratugum með árangurdrifinni og jákvæðri menningu.

15:40Út úr boxunum, inn í óvissuna: Mannauður í breyttum heimi-Rúna Magnúsdóttir leiðtogamarkþjálfi

Í þessu erindi munum við skoða afleiðingar mannlegrar hegðunar um það hvernig samfélagið og við sjálf höfum pakkað okkur og öðrum inn í ósýnileg box sem halda aftur af okkur í lífi og starfi. Við kynnumst einföldum og áhrifaríkum leiðum til að kíkja ofaní boxin, opna þau og endurröðum með gleðina og framsýni að leiðarljósi.

16:00Skálum saman fyrir framtíðinni og tengjumst!

Léttar veitingar og tengslanetið stækkað í góðra vina hópi.

18:00Partýið búið - haldið saman út í vorið!

Ráðstefnan er aðeins opin félagsmönnum ÍMARK, FVH, Ský, Stjórnvísi og Mannauðs.

Miðaverð:10.990 kr.

Skráning fer framhér.

Previous
Previous

Aðalfundur ÍMARK 5 júní n.k.

Next
Next

ÍMARK dagur og Lúður 1 . mars