Sigurvegarar Lúðursins 2024

Lúðurinn var afhentur á ÍMARK-deginum 7. mars síðastliðinn, en Kontor hlaut flesta Lúðra í ár.

Þetta var í 39. skipti sem Lúðurinn var veittur, en hann er uppskeruhátíð markaðs- og auglýsingafólks þar sem frumlegustu, skapandi og snjöllustu hugmyndirnar, sem eru útfærðar á framúrskarandi hátt, hljóta viðurkenningu.

Verðlaunin eru veitt í samstarfi ÍMARK, samtaka markaðs- og auglýsingafólks, og Sambands íslenskra auglýsingastofa.

Kontor með þrjá Lúðra fyrir Kringluna og einn fyrir Val fólksins.

Kontor hlaut sem fyrr segir flest verðlaun í ár. Þrjú þeirra voru fyrir hönd Kringlunnar í eftirfarandi flokkum:

  • Kvikmyndaðar auglýsingar – styttri

  • Prentauglýsingar

  • Herferðir

Auk þess vann Kontor Val fólksins, sem er kosning á mbl.is.

Brandenburg og Hér & Nú með þrjá Lúðra

Brandenburg hlaut Lúður fyrir eftirfarandi verkefni:

  • Viðburðir:Viðburðinn „Merkileg“ á Hönnunarmars (flokkur: Viðburðir)

  • Almannaheilla - opinn flokkur:Búðu til pláss fyrir UNICEF (flokkur: Almannaheilla – opinn flokkur)

  • Mörkun ásýnd vörumerkis:Heimar

Hér & Nú fékk einnig þrjá Lúðra fyrir eftirfarandi auglýsingar:

  • Hljóðauglýsingar:Dánafregnir - Í samstarfi við Blush og Sorpu

  • Umhverfisauglýsingar:Bleika tunnan - Í samstarfi við Blush og Sorpu

  • Kvikmyndaðar auglýsingar Lengri:Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

PIPAR - Ekki taka skjáhættuna með tvo Lúðra

Pipar\TBWA vann tvo Lúðra fyrir auglýsinguna "Ekki taka skjáhættuna" sem þau unnu í samstarfi Sjóvá. Það var í flokknum PR  og veggspjöldum og skiltum. Pipar vann einnig silfur í flokknum - Almannaheillaauglýsingar - kvikmynduð auglýsing fyrir "Afsakið hlé" sem þau unni með UN Women.

HVÍTA HÚSIÐ - KOMBAKK með tvo Lúðra

Hvíta húsið vann tvo Lúðra fyrir auglýsinguna "Kombakk" sem þau unnu í samstarfi við VIRK. Það var fyrir flokkana "Almannaheillaauglýsingar - kvikmynduð auglýsing og "Almannaheillaauglýsingar - Herferðir".

CIRKUS með tvo Lúðra

Cirkus auglýsingastofa vann tvo Lúðra í ár. Annar Lúðurinn var fyrir auglýsinguna "Gleðileg Hljóð" sem þau unnu í samstarfi við KPMG í flokknum "Stafrænar auglýsingar" og hinn fyrir auglýsinguna "Rafpóstur" sem þau unnu í samstarfi við Orkux Flona í flokknum "Bein markaðssetning"

Ennemm með einn Lúður og eitt silfur

Ennemm vann Lúður fyrir auglýsinguna "Þinn fallegi dagur" sem þau unnu í samstarfi við Ölgerðina- Collab í flokknum "Stafrænar auglýsingar - gagnvirkni", Ennemm vann einnig silfurverðlaun fyrir auglýsinguna"Fyrir hraðari endurheimt" í flokknum "Kvikmyndaðar auglýsingar lengri

Þrjú silfurverðlaun veitt

Keppnin var hörð í nokkrum flokkum og dómnefnd Lúðursins ákvað að veita silfurverðlaun í þeim flokkum þar sem lítill munur var á tveimur efstu auglýsingunum.

Eftirfarandi fyrirtæki hlutu silfurverðlaun:

ENNEMM + AriMagg
með auglýsinguna "Fyrir hraðari endurheimt" í flokknum "Kvikmyndaðar auglýsingar lengri sem þau unnu fyrir Ölgerðina- Collab Hydro.

Pipar\TBWAmeð auglýsinguna "Afsakið hlé" í flokknum "Almannaheillaauglýsingar - kvikmynduð auglýsing "  sem þau unnu fyrir UN Women.

Brandenburg+ PLAYmeð auglýsinguna "Eyddu í fríið" í flokknum "Veggspjöld og skilti"sem þau unnu fyrir PLAY.

Sjá hér að neðan lista yfir alla siguvergara og silfurhafa:

01: Kvikmyndaðar auglýsingar - Lengri

Nafn auglýsingar: Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Auglýsandi: Íslandsbanki

Auglýsingastofa: Hér&Nú

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

02: Kvikmyndaðar auglýsingar - Styttri

Nafn auglýsingar: Ekkert smá

Auglýsandi: Kringlan

Auglýsingastofa: Kontor

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

03: Prentauglýsingar

Nafn auglýsingar: Ekkert smá

Auglýsandi: Kringlan

Auglýsingastofa: Kontor

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

04: Hljóðauglýsingar

Nafn auglýsingar: Dánarfregnir

Auglýsandi: Blush & Sorpa

Auglýsingastofa: Hér&Nú

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

05: Bein markaðssetning

Nafn auglýsingar: Rafpóstur

Auglýsandi: Orka x Floni

Auglýsingastofa: Cirkus auglýsingastofa

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

06: Veggspjöld og skilti

Nafn auglýsingar: Ekki taka skjáhættuna

Auglýsandi: Samgöngustofa og Sjóvá

Auglýsingastofa: Pipar /TBWA

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

07: Umhverfisauglýsingar

Nafn auglýsingar: Bleika tunnan

Auglýsandi: Blush & Sorpa

Auglýsingastofa: Hér&Nú

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

08: Viðburðir

Nafn auglýsingar: Merkileg

Auglýsandi: Brandenburg

Auglýsingastofa: Brandenburg

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

09: PR

Nafn auglýsingar: Ekki taka skjáhættuna

Auglýsandi: Sjóvá og Samgöngustofa

Auglýsingastofa: Pipar /TBWA

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

10: Stafræn auglýsing

Nafn auglýsingar: Gleðileg hljóð

Auglýsandi: KPMG

Auglýsingastofa: Cirkus auglýsingastofa

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

11: Stafræn auglýsing - Gagnvirkar/virkjun

Nafn auglýsingar: Þinn fallegi dagur

Auglýsandi: Ölgerðin - Collab

Auglýsingastofa: ENNEMM

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

12: Almannaheillaauglýsingar - Kvikmynduð auglýsing

Nafn auglýsingar: Kombakk

Auglýsandi: VIRK

Auglýsingastofa: Hvíta húsið

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

13: Almannaheillaauglýsingar - Opinn flokkur

Nafn auglýsingar: Búðu til pláss

Auglýsandi: Unicef

Auglýsingastofa: Brandenburg

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

14: Almannaheillaauglýsingar - Herferðir

Nafn auglýsingar: Kombakk

Auglýsandi: VIRK

Auglýsingastofa: Hvíta húsið

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

15: Mörkun - ásýnd vörumerkis

Nafn auglýsingar: Heimar

Auglýsandi: Heimar

Auglýsingastofa: Brandenburg

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

16: Herferð

Nafn auglýsingar: Ekkert smá stór Kringlan

Auglýsandi: Kringlan

Auglýsingastofa: Kontor

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

17. Áran

Nafn auglýsingar: Síminn

Auglýsandi: Iceguys

Auglýsingastofa: Síminn

Verðlaun: Sigurvegari

--------------------------------------------------

Val Fólksins mbl.is

Nafn auglýsingar: Yfir sjó og land til þín

Auglýsandi: Eimskip

Auglýsingastofa: Kontor

Previous
Previous

Auglýsingastofa ársins og vörumerki ársins

Next
Next

ÍMARK Dagur og Lúður 7.mars