Miðasala hafin á Ímarkdaginn 2026

Stærsti Ímarkdagur í 40 ára sögu félagsins – miðasala hafin
Ímark hefur opnað fyrir miðasölu á Ímark-deginum 2026 sem fer fram 6. mars í Háskólabíói og verður sá stærsti í 40 ára sögu félagsins. Í ár er dagskráin óvenju metnaðarfull, með þremur eftirsóttum alþjóðlegum sérfræðingum á sviði markaðsmála. Um kvöldið blásum við svo til lúðursins með árlegri verðlaunahátíð, þar sem framúrskarandi hæfileikar og árangur markaðsfólks eru heiðraðir. Þetta er viðburður sem enginn í faginu ætti að láta fram hjá sér fara!
Ímarkdagurinn 2026 snýst um eitt brýnasta viðfangsefni sem fyrirtæki standa frammi:
Hvernig ná má athygli, byggja upp vörumerkjavirði og skila raunverulegum viðskiptalegum árangri í sífellt harðari samkeppni.
Til landsins koma þrjár alþjóðlegar stjörnur:
Jon Evans (Uncensored CMO), einn áhrifamesti markaðssérfræðingur heims, þekktur fyrir beitta nálgun og skýrar tengingar milli sköpunar og arðsemi. Erindi Jon er „The Extraordinary Cost of Dull“. Jon sýnir okkur af hverju það er dýrasta ákvörðun ferilsins að vera leiðinlegur og hvernig sköpunargleði er lykillinn að mælanlegum hagnaði.
Patrick Fagan, leiðandi atferlisvísindamaður og metsöluhöfundur, sem vinnur með alþjóðlegum vörumerkjum að því að skilja hvað raunverulega stýrir athygli og ákvörðunum. Patrick útskýrir sálfræðina á bak við „dyravörð heilans“ (The Brain’s Bouncer) og af hverju ákveðið efni – allt frá hvolpum yfir í „banana“ – fær okkur til að hætta að skrolla og gefa athygli.
Vicky Owens, Stofnandi og forstjóri Socially Speaking Media, sem vinnur með vörumerkjum á borð við Netflix, Sky og ghd. Vicky er þekkt fyrir að afhjúpa hvað virkar raunverulega á samfélagsmiðlum – og hvað ekki. Hún er margverðlaunaður fyrirlesari, umsjónarmaður Business Class hlaðvarpsins (top 1% á heimsvísu) og hefur byggt upp öflugt alþjóðlegt fylgi með yfir 250.000 fylgjendum.
Á sama degi verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur þegar Markaðsfyrirtæki ársins og ÁRA – árangursríkasta auglýsingaherferð ársins verða kynnt.
Hús opnar: kl 12:00. Ráðstefna hefst stundvíslega kl 12:30 - 16:30.
DAGSKRÁ Lúðursins frá kl 18:00-20:00
Kynnar á Lúðrinum eru: Birna Rún Eiríksdóttir og Snjólaug Lúðvíksdóttir
Takmarkaður miðafjöldi – viðburður sem markaðs- og stjórnendateymi vilja ekki missa af.
Miðasala er hafin á
Tix.is
