Námsmenn

Námsaðild að ÍMARK kostar lítið - 5.900 kr - en gefur aðgang að viðburðum, tengslamyndun, innblæstri og samfélagi fólks sem vinnur við markaðsmál, hönnun, miðlun og sköpun.

Sem námsmaður færðu meðal annars:

  • Aðgang að viðburðum og fyrirlestrum

  • Innsýn í íslenskan markaðs- og auglýsingabransa

  • Tækifæri til að tengjast fyrirtækjum og fagfólki

  • Afsláttarkjör og aðgang að efni frá ÍMARK deginum og Lúðrinum

  • Samfélag sem getur hjálpað þér inn í greinina

ÍMARK er með yfir 339 aðildaraðila og markmiðið er að skapa meira virði fyrir félagsmenn með öflugri viðburðum og faglegu efni.