Birtingar í brennidepli - morgunfundur

ÍMARK boðar til morgunfundar í Grósku þann 7. maí þar sem birtingar og þróun þeirra verða teknar til umræðu.

Markmið fundarins er að taka opið og heiðarlegt samtal um hvert íslenskt auglýsingafé er að fara og hvaða áhrif sú þróun hefur á íslenska miðla, auglýsendur og markaðsumhverfið í heild. Á tímum hraðra breytinga, aukinnar sjálfvirkni og nýrra dreifileiða er ljóst að landslag birtinga er að taka miklum breytingum.

Á fundinum verða tvö pallborð:

Pallborð I – Hefðbundnir / íslenskir miðlar
Einar Logi Vignisson –RÚV
Silja Jóhannesdóttir –Morgunblaðið / mbl.is
Kári Jónsson –Síminn
Guðmundur Halldór Björnsson –SÝN

Pallborð II – Stýring markaðsmála
Anna Fríða Gísladóttir –Nói Siríus
Ívar Gestsson –Birtingahúsið
Andri Már Kristinsson –Digido
Jóhannes Karl Sigursteinsson –ENNEMM, fyrir hönd SÍA

Fundurinn er vettvangur fyrir ólík sjónarmið og opna umræðu.

Gróska – Parketið
Kaffi og morgunhressing kl. 08:30
Dagskrá 09:00–10:30

Verð:
Félagar ÍMARK: 1.990 kr
Aðrir: 7.990 kr(Það borgar sig að vera í aðild hjá ÍMARK)Skráðu þig í ÍMARKhér

Nældu þér í miðahér

Previous
Previous

UPPSELT ! Morgunfundur - Birtingar - örfáir miðar eftir

Next
Next

Pipar/TBWA er Auglýsingastofa ársins 2025 og Krónan Vörumerki ársins 2025