Pipar/TBWA er Auglýsingastofa ársins 2025 og Krónan Vörumerki ársins 2025
Verðlaun fyrir Auglýsingastofu ársins og Vörumerki ársins voru afhent á ÍMARK deginum 2026 sem fram fór 6. mars í Háskólabíó.
Verðlaun fyrirAuglýsingastofu ársinsogVörumerki ársinseru veitt ár hvert áÍMARK deginum. Að verðlaununum standaÍMARK í samstarfi við Prósent, sem unnu mælingarnar sameiginlega.
Í ár hlautPipar/TBWAtitilinnAuglýsingastofa ársins 2025ogKrónanvar valiðVörumerki ársins 2025.
Verðlaunin fyrirAuglýsingastofu ársinseru veitt fyrir framúrskarandi þjónustu, hugmyndaauðgi, fagleg vinnubrögð og árangur í verkefnum fyrir viðskiptavini á nýliðnu ári. Þetta var þriðjá árið í röð semPipar/TBWAvinnur titilinnAuglýsingastofa ársins.
Verðlaun fyrirVörumerki ársinseru veitt því vörumerki sem hefur skarað fram úr í markaðssetningu, sýnileika og uppbyggingu sterkrar stöðu á markaði.
Verðlaunin voru afhent áÍMARK deginum 2026, sem fór fram með glæsibrag íHáskólabíó 6. mars.
ÍMARK óskarPipar/TBWAogKrónunniinnilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.