Traust, væntingar og árangur í samband auglýsingastofa og viðskiptavina.
ÍMARK og SÍA leggja saman krafta sína og standa fyrir morgunfundi í Grósku þar sem við beinum sjónum að sambandi auglýsingastofa og viðskiptavina.
Hvað einkennir farsælt samstarf og hvernig getum við í sameiningu skapað meiri verðmæti og betri árangur?
Hvenær er tímabært að endurskoða samstarfið, hvenær skilar það raunverulegum ávinningi að fara í útboð eða pitch, eða eru aðrar leiðir færar?
FRÁ HJÓNABANDSRÁÐGJÖF TIL ALÞJÓÐLEGRA RANNSÓKNA
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi, opnar fundinn og veltir upp spurningunni um hvað einkennir góð sambönd.
Anna Kristín Kristjánsdóttir, meðstjórnandi SÍA og starfandi stjórnarformaður Hvíta hússins, fer yfir tvær alþjóðlegar rannsóknir sem varpa ljósi á samstarf auglýsenda og auglýsingastofa, væntingar beggja aðila og áskoranir við val á samstarfsaðilum. Einnig verður áhugaverður samanburður á Íslandi og öðrum löndum.
Að lokum ræða fulltrúar úr bransanum hvað virkar í raun, hvað mætti betur fara og hvernig hægt sé að byggja upp sterkari og árangursríkari sambönd.
19. nóvember 2026 · 09:00–10:30 · Fenjamýri, Gróska
Félagar í ÍMARK: 2.900 kr. · Almennt verð: 4.900 kr.
Ekki félagi í ÍMARK? Kynntu þér aðild hér
Tryggðu þér sæti og taktu þátt í samtalinu um hið fullkomna samband!