40 ár af athygli -afmælishátíð ÍMARK í máli og myndum

ÍMARK fagnaði 40 ára afmæli sínu með afar vel sóttum afmælisfundi í Grósku þann 30. september. Þar komu saman gestir úr íslensku atvinnu- og markaðslífi til að líta yfir farinn veg og ræða hvernig baráttan um athygli hefur breyst á síðustu fjórum áratugum.

40 ár á fimm mínútum

Katrín Guðjónsdóttir, formaður ÍMARK, opnaði dagskrána áður en sýnd var frábær fimm mínútna stikla sem Saga Film hafði tekið saman úr íslenskum auglýsingum síðustu 40 ára. Stiklan vakti bæði hlátur og nostalgíu í salnum og gaf tóninn fyrir samtal Pálma Guðmundssonar og Silju Bjarkar um þróun auglýsinga, miðla og athygli.

Stofnandi ÍMARK heiðraður

Þráinn Þorvaldsson, einn af stofnendum ÍMARK, var sérstaklega heiðraður í tilefni tímamótanna og flutti nokkur orð. Stofnun félagsins árið 1986 markaði mikilvæg tímamót fyrir íslenskt markaðsstarf og því var einstaklega ánægjulegt að fá Þráin til að fagna þessum degi með okkur.

Umtöluð 3G-auglýsing rifjuð upp

Samúel Bjarki Pétursson, annar helmingur leikstjórateymisins Samuel & Gunnar, steig á svið og sagði frá hinni þekktu 3G-auglýsingu Símans frá árinu 2007.

Í auglýsingunni nýttu Jesús og Júdas sér nýjustu 3G-tæknina með þeim afleiðingum að gangur sögunnar breyttist. Auglýsingin, sem var framleidd af Skot Productions, vakti mikla athygli og töluverðar deilur þegar hún birtist. Jón Gnarr kom meðal annars að hugmyndinni og lék í henni.

Fyrir afmælisfundinn hafði auglýsingin verið stafrænt endurunnin og myndgæðin bætt til muna. Gestir fengu því að sjá þessa umtöluðu auglýsingu í nýjum og mun skýrari búningi á stóra skjánum.

Hugsum eins og framleiðendur

Hápunktur dagsins var Marion „Maz“ Farrelly með erindið Think Like a Producer. Þar fór hún yfir sín tíu „Com-Maz-Ments“ og sýndi hvernig aðferðir sjónvarpsframleiðenda geta nýst markaðsfólki við að fanga athygli og fá fólk til að bregðast við.

Maz hvatti áheyrendur til að skera burt óþarfa suð, gera heiðarlega úttekt á því hvað í eigin efni er orðið fyrirsjáanlegt eða leiðinlegt og hætta að treysta á von sem stefnu. Skilaboðin þurfa að vera skýr og byrjunin nógu sterk til að vekja forvitni og fá fólk til að vilja meira.

Markaðsfólk þarf að þora að gera hávaða, leita markvisst að vandamálunum sem þarf að leysa, skapa hugmyndir sem festast í minni og hugsa öðruvísi.

Það er ekki hlutverk áhorfandans að hafa áhuga á okkur. Það er okkar hlutverk að vera áhugaverð.

Veisla fyrir augun

Að dagskrá lokinni tóku við glæsilegar veitingar. Bananar og vöruhönnuðurinn Svana Lovísa breyttu veisluborðinu í litríkt listaverk sem gestir gátu gætt sér á, og Ölgerðin sá til þess að enginn færi þyrstur heim.

Við þökkum öllum sem fögnuðu þessum mikilvægu tímamótum með okkur.

Myndir frá afmælisfundinum

Skoðaðu stemninguna frá 40 ára afmælisfundi ÍMARK og athugaðu hvort þú finnir þig á mynd!

Next
Next

Konan sem náði athygli 8 milljarða manna kemur til Íslands