Hið fullkomna samband? Smekkfullt hús í Grósku

Það var smekkfullt hús í Fenjamýri í Grósku fimmtudaginn 19. nóvember þegar ÍMARK og SÍA tóku höndum saman og stóðu fyrir morgunfundinum Hið fullkomna samband?

Í brennidepli var samband auglýsingastofa og viðskiptavina, þar sem traust, væntingar og árangur voru meðal helstu umræðuefna. Hvað einkennir farsælt samstarf, hvernig byggjum við upp gagnkvæmt traust og hvernig getum við í sameiningu skapað meiri verðmæti og betri árangur?

Fundurinn skapaði vettvang fyrir opna og líflega umræðu um þetta mikilvæga samband, áskoranir þess og ekki síður tækifærin til framtíðar.

Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi opnaði fundinn og minnti á að margt er líkt með hjónabandi og viðskiptasambandi. Sambönd eru alls konar og engin ein uppskrift sem hentar öllum, en í grunninn snýst þetta um traust, skýrar væntingar og að rækta sambandið reglulega.

Hvað vilja markaðsstjórar frá stofunum? Anna Kristín Kristjánsdóttir, starfandi stjórnarformaður Hvíta hússins og meðstjórnandi SÍA, kynnti niðurstöður EACA CMOs' Expectations 2026, sem Kantar vann. 141 stjórnandi í 22 Evrópulöndum svaraði og 9% svarenda eru frá Íslandi, jafn mörg og frá Svíþjóð. Íslenskar raddir vega því óvenju þungt í gögnunum.

  • 94% líta á stofuna sína sem samstarfsaðila, aðeins 2% sem birgja.

  • 71% eru ánægð en aðeins 26% mjög ánægð. Almenn ánægja, ekki hrifning.

  • Traust (49%) og djúp þátttaka í rekstri (41%) ráða mestu þegar stofa er valin, meira en verðlaunuð skapandi vinna.

  • 46% fóru í útboð eða pitch á síðustu 12 mánuðum og 65% þeirra skiptu um stofu.

  • Sex af hverjum tíu hugmyndum sem vinna pitch eru aldrei innleiddar.

  • Frumkvæði er það sem markaðsstjórar sakna mest: 35% setja það efst en aðeins 18% segja stofuna standa sig mjög vel. Árangursmæling (ROI) fékk lægstu einkunnina, 11%.

Anna Kristín lauk á fimm spurningum til að taka með á næsta fund með stofunni:

  1. Frumkvæði: Hvað hafið þið lagt til óumbeðið síðustu sex mánuði?

  2. Aðgangur: Hvaða tölur okkar sjáið þið, og hvað vantar?

  3. Mælikvarðar: Á hverju dæmum við þetta verkefni?

  4. Gervigreind: Hvað notið þið í dag, hvað virkar og hvað kemur næst?

  5. Greiðslulíkan: Hvað borgar fyrir hugsunina?

Nánar um niðurstöður könnunarinnar hér

Pallborð: Kaupendur og stofur við sama borð

Í lok fundar stýrði Katrín M. Guðjónsdóttir, formaður ÍMARK, pallborðsumræðum um samband auglýsingastofa og viðskiptavina. Markmiðið var að skapa líflega, opna og uppbyggilega umræðu þar sem ólík sjónarmið fengju að njóta sín og stuðlað væri að auknum gagnkvæmum skilningi.

Sérstök áhersla var lögð á hvernig auglýsingastofur og fyrirtæki geta í sameiningu skapað meiri verðmæti, styrkt samstarfið og náð betri árangri. Jafnframt var horft til framtíðar og rætt hvernig samstarfið getur þróast í takt við breyttar þarfir og væntingar beggja aðila.

Í pallborði sátu Sigtryggur Magnason (Samtök atvinnulífsins), Daði Guðjónsson (Íslandsstofa), Unnur María Pálmadóttir (Kringlan), Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson (Nova), Birna María Másdóttir (Nói Síríus), Sveinn Líndal Jóhannsson (ENNEMM), Anna Kristín Kristjánsdóttir (Hvíta húsið / SÍA) og Selma Rut Þorsteinsdóttir (Pipar\TBWA / formaður SÍA). Guðmundur Böðvar Guðjónsson hjá Íslandsbanka forfallaðist og hljóp Sigurbjörn Ari í skarðið. 

Takk öll sem mættu

Væntingar stjórnenda markaðsmála til auglýsingastofa EACA CMOs' Expectations 2026

Next
Next

HIÐ FULLKOMNA SAMBAND?