Konan sem náði athygli 8 milljarða manna kemur til Íslands

ÍMARK fagnar 40 ára afmæli þann 30. september með sérstökum fag- og afmælisviðburði í Grósku. Aðalgestur dagsins verður Marion „Maz“ Farrelly, alþjóðlegur fyrirlesari og margverðlaunaður sjónvarpsframleiðandi sem hefur komið að nokkrum stærstu sjónvarpsþáttum heims.

8+ milljarða áhorf. Hvað þarf til að fanga athygli - og halda henni?

Maz hefur í yfir 30 ár starfað við að skapa efni sem fólk gat ekki hætt að horfa á. Hún hefur verið verið driffjöðrin á bak við nokkra af vinsælustu sjónvarpsþáttum heims, Big Brother, The X Factor, The Celebrity Apprentice, Dancing with the Stars og The Weakest Link. Verkefni sem hún hefur komið að hafa, samkvæmt Maz, náð yfir 8 milljörðum áhorfa.

Í dag ferðast Maz um heiminn sem fyrirlesari og ráðgjafi og nýtir 30 ára reynslu sína úr sjónvarpi og miðlum til að hjálpa vörumerkjum að ná athygli, segja betri sögur og skapa sterkari tengsl við fólk.

„THAT'S INTERESTING. TELL ME MORE.“

Það er ekki nóg að ná athygli. Þú þarft að vekja áhuga og fá fólk til að vilja vita meira. Fimm orðin „That's interesting. Tell me more.“ eru að mati Maz ekki bara hrós – heldur raunverulegt viðskiptalegt forskot.

Erindi hennar verður hratt, beitt, skemmtilegt og hagnýtt, með verkfærum sem gestir geta nýtt sér.

40 ár af íslenskri markaðssetningu

Viðburðurinn snýst þó um meira en Maz. Í tilefni 40 ára afmælis ÍMARK ætlum við líka að líta yfir farinn veg, rifja upp 40 ár af íslenskri markaðssetningu og velta fyrir okkur hvað hefur breyst – og hvað hefur alls ekki breyst - í baráttunni um athygli og árangur.

Maz verður heldur ekki ein á sviðinu. Fleiri spennandi gestir úr bransanum verða með okkur yfir daginn og koma með sín sjónarhorn, sögur og hugmyndir. Þeir verða kynntir einn af öðrum á næstu vikum.

Að faglegri dagskrá lokinni höldum við áfram saman og fögnum 40 ára afmæli ÍMARK með búbblum, léttum veitingum og góðri stemningu.

30. september 2026 · Gróska
Félagsmenn ÍMARK: 15.900 kr. · Almennt verð: 25.900 kr.

Fylgist með - fleiri spennandi gestir verða kynntir á næstu vikum. Tryggið ykkur miða á 40 ár af athygli - miðasala á tix.iss

Next
Next

Aðalfundur ÍMARK 2026